Frá seinni heimsstyrjöldinni hafa Bandaríkjamenn byggt upp aðstöðu fyrir herafla sinn á Marshall-eyjum og í raun komið fram við Marshalleyjar eins og hluta af Bandaríkjunum, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar.
Í staðinn hafa Bandaríkin lagt peninga til uppbyggingar á eyjunum og skapað störf. Þá hafa margir íbúar Marshall-eyja nýtt sér það að geta búið og unnið í Bandaríkjunum. Þúsundir hafa flutt til Havaí, Arkansas og Oklahoma.
Ráðamenn á Marshall-eyjum vilja að Bandaríkin greiði frekari bætur til íbúa eyjanna vegna mikils fjölda kjarnorkuvopnatilrauna sem voru framkvæmdar þar á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Þar á meðal er tilraunasprengingin á Bikini-rifi.
Þeir kvarta yfir hárri tíðni krabbameins meðal íbúa og segja að gamalt samkomulag frá níunda áratug síðustu aldar dugi ekki til. Það samkomulag sé ekki sanngjarnt og taki ekki tillit til þess skaða sem íbúar eyjanna hafa orðið fyrir.
Nú er kominn tími til að endurnýja það samkomulag en það vilja íbúar Marshall-eyja ekki gera. Frekar vilja þeir gera nýtt og betra samkomulag.
Vilja viðræður í forgang
Ríkisstjórn Joes Biden hefur ekki átt í viðræðum við ráðamenn á Marshall-eyjum og því hefur hópur fulltrúadeildarþingmanna beggja flokka á Bandaríkjaþingi mótmælt. Þeir segja ekki við hæfi að ræða ekki um málið og semja við ráðamenn á Marshall-eyjum á sama tíma og Bandaríkjamenn hafa beint athygli sinni frekar að Kyrrahafinu og því að sporna gegn auknum áhrifum Kína.
Þingmennirnir segja aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar veikja stöðu Bandaríkjanna og gefa ráðamönnum í Kína færi á að stíga inni í tómarúmið og koma að þeim mikilvægu fjárfestingum sem íbúar Marshall-eyja vilja og þurfa.
Vijla viðgerðir á steypuhvelfingu
Gamla samkomulagið sem Bandaríkin gerðu við Marshall-eyjar var samkvæmt AP fréttaveitunni upp á 150 milljónir dala. Áætlað er að raunverulegur kostnaður vegna skaðans sem kjarnorkuvopnatilraunirnar ollu séu nær þremur milljörðum dala.
Þar er innifalinn kostnaður vegna viðgerða á steypuhvelfingu sem inniheldur mikið magn geislavirks jarðvegs. Sérfræðingar segja hana skemmda og að geislavirkur úrgangur leki frá henni.
Orkumálastofnun Bandaríkjanna sagði í skýrslu sem birt var í fyrra að byggingin væri ekki skemmd og að grunnvatn sem yrði fyrir geislavirkni vegna hennar hefði ekki mælanleg áhrif á umhverfið.