Síðan 2109 hefur Sveinn leikið með SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni. Eftir þetta tímabili söðlar hann um og færir sig yfir til Þýskalands.
Sveinn, sem er 22 ára línumaður, gekk í raðir SønderjyskE frá ÍR 2019. Hann er uppalinn hjá Fjölni.
Sveinn hefur leikið tíu A-landsleiki og kom meðal annars við sögu hjá íslenska landsliðinu á EM 2020.
Hann er í 35 manna hópnum fyrir Evrópumótið í Ungverjalandi og Slóvakíu sem verður haldið í næsta mánuði.