Ella Masar þekkir Söru vel en þær léku saman hjá Wolfsburg tímabilið 2018-19 en það var jafnframt síðasta tímabil Masars á ferlinum. Wolfsburg vann tvöfalt í Þýskalandi þetta tímabil.
Masar fylgdist með leik Breiðabliks og Real Madrid sem fór fram við vægast sagt erfiðar aðstæður á Kópavogsvelli í fyrradag. Snjó kyngdi niður á meðan leik stóð og ryðja þurfti völlinn fyrir leik og í hálfleik.
Masar var forviða á aðstæðunum en sagði í færslu á Twitter að þær skýrðu kannski hugarfar Söru og af hverju hún hefur náð jafn langt og raun ber vitni.
„Ég skil miklu betur hvaðan hugarfar Söru Bjarkar kemur núna. Þetta lítur hræðilega út, haha,“ skrifaði Masar á Twitter.
Vammmooss @realmadridfem and side note @sarabjork18 mentality makes so much more sense now haha this looks horrible ha pic.twitter.com/QOz3pU3F7t
— Ella Masar (@emasar3) December 8, 2021
Sara er uppalin hjá Haukum en lék með Breiðabliki í tvö og hálft tímabil áður en hún hélt út í atvinnumennsku.
Sem kunnugt er eignaðist Sara sitt fyrsta barn á dögunum, soninn Rúnar Frank. Faðir hans er Árni Vilhjálmsson, leikmaður Breiðabliks.