Norska dagblaðið Klassekampen fjallar málið og þar á bæ vekur það helst athygli að Bergsveinn fari fram með ásakanir sínar um ritstuld gegn seðlabankastjóra Íslands. „Ut mot sentralbanksjef“ eða „Fer fram gegn seðlabankastjóra“.

Þar segir að Bergsveinn staðhæfi að íslenski seðlabankastjórinn hafi gerst sekur um ritstuld, fengið kenningar að láni úr bókinni Svarta víkingnum sem kom út í Noregi 2013 og naut þar mikillla vinsælda. Vísað er til greinargerðar Bergsveins þess efnis sem hann birti á Vísi og hefur dregið dilk á eftir sér.
Bergsveinn segir, í samtali við Vísi, að vinur hans sé nú að þýða greinargerðina yfir á norsku og þá megi þess vænta að málið muni vekja enn meiri athygli utan landsteina en þegar er orðið. Eins og fram hefur komið hefur siðanefnd Háskóla Íslands málið nú til umfjöllunar innan sinna vébanda en greinargerðar Ásgeirs um málið er vænst en hann hefur boðað að hann muni fara í og svara ásökunum Bergsveins lið fyrir lið. Ásgeir hefur alfarið hafnað ásökunum Bergsveins.

Þá hefur hið norska Morgunbladed fjallað ítarlega um málið undir fyrirsögninni „Forfatter meinar han er utsett for plagiat – af Islands sentralbanksjef“ Þar er vitnað í Bergsvein í undirfyrirsögn sem segir að óheppilegt sé að viðkomandi gegni svo hárri stöðu innan íslenska ríkisins. Þar er einnig vísað til umfjöllunar Vísis en Bergsveinn segir í samtali við Helene Hovden Hardeide að sér hafi brugðið í brún þegar hann las bók Ásgeirs; slík hafi samsvörunin verið milli bókar sinnar og svo þess sem hann las í Eyjunni hans Ingólfs.