Heimsmeistarmótið í pílukasti heldur áfram göngu sinni og 16-manna úrslitin verða leikin í dag en klukkan 12:30 hefjast þrjár viðureignir. Raymond Smith gegn Mervyn King, Alan Soutar gegn Callan Rydz og Chris Dobey gegn Luke Humphries. 16-manna úrslitin klárast svo í seinni útsendingunni klukkan 19:00 með leikjum, James Wade gegn Martijn Kleermaker, Gary Anderson gegn Rob Cross og Peter Wright gegn Ryan Searle.
Það er einn leikur á dagskrá í ensku 1. deildinni en klukkan 19:30 hefst viðureign Bristol City gegn QPR í 25. umferð.
Í Subway-deild karla er stórleikur í vændum klukkan 20:00 þar sem Keflavík tekur á móti Njarðvík í slagnum um Reykjanesbæ. Strax eftir leik, eða klukkan 22:00, hefst Subway Körfuboltakvöld með Kjartani Atla og félögum þar sem síðustu leikir ársins í deildinni verða gerðir upp.
Á Stöð 2 eSport verður Rauðvín og klakar í beinni klukkan 21:00 eins og öll önnur fimmtudagskvöld.