Í tilkynningu á vef verðlaunanna segir að það líti því út fyrir að þeir söngvarar og söngkonur sem hlutu verðlaun í sínum flokkum á síðustu verðlaunahátið hafi verið þau síðustu að hljóta þá nafnbót.
Það voru þau Högni Egilsson, Bríet Ísis Elfar, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og Stuart Skelton sem voru söngvarar og söngkonur ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021.
Haft er eftir Kristjáni Frey Halldórssyni framkvæmdastjóra Íslensku Tónlistarverðlaunanna á veg verðlaunanna að einhugur hafi verið meðal þeirra sem standa að þeim að taka þessa ákvörðun. Hún sé tákn um nýja tíma.
Nánar var rætt við Kristján Frey í Reykjavík síðdegis í dag þar sem hann fór betur yfir þessa ákvörðun.