Anna Frank hélt úti dagbók meðan hún var í felum frá nasistum í seinna stríði. Bókin var gefin út eftir andlát hennar og hefur notið mikilla vinsælda áratugum saman.
Faldi hún sig í fyrirtæki föður hennar árið 1942, mánuði eftir að hún fékk dagbókina í hendurnar á 13 ára afmælisdaginn sinn. Hún hélt sig í felum í um tvö ár áður en þýskir nasistar handtóku hana og fjölskyldu hennar. Hvernig nastistarnir fundu fjölskylduna, eftir að hafa verið svo lengi í felum, hefur aldrei verið svarað með óyggjandi hætti.
Telja sig vera komnir með svarið
Sérfræðingar sem rannsakað hafa gögn málsins undanfarin sex ár telja sig hins vegar nú vera komnir með svarið, en fjallað var um rannsóknina í 60 mínútum á CBS-sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum í gær.
Þar var rætt við Vince Pankoke, fyrrverandi rannsóknarlögreglumann hjá Bandarísku alríkislögreglunni, sem var einn af þeim sem kom að rannsókninni. Sérfræðingar beittu meðal annars algrímum til þess að skanna gögnin í leit að tengingum á milli mismunandi einstaklinga sem komu að málinu.
Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að líklega hafi gyðingur að nafni Arnold van der Bergh verið sá sem sveik fjölskylduna í hendur nasista. Það hafi hann gert til að bjarga eigin fjölskyldu.
Er þetta byggt á ýmsum gögnum, meðal annars þeirri staðreynd að var meðlimum Gyðingaráðs Amsterdam, sem stofnað var af nasistum og var ætlað að framfylgja stefnu nasista á svæðum gyðinga í borginni. Ráðið var leyst upp árið 1943 og meðlimir þess sendir í útrýmingabúðir nasista.
Í ljós kom hins vegar að Van den Berg var ekki sendur í útrýmingabúðir, heldur lifði hann tiltölulega venjulegu lífi í Amsterdam á þessum tíma. Þá benda ýmis gögn til þess að meðlimir ráðsins hafi gefið nasistum upplýsingar um aðra gyðinga.
Lést árið 1950
„Þegar Van den Bergh naut ekki lengur verndar frá útrýmingarbúðunum varð hann að gefa nasistum eitthvað verðmætt til þess að tryggja öryggi hans og fjölskyldu hans,“ sagði Pankoke við 60 mínútur. Þar lýsir Pankoke því hvernig hann hafi beitt rannsóknaraðferðum FBI við rannsóknina.
Í skjölum málsins fannst einnig afrit af bréfi sem sent hafði verið Otto Frank, föður Önnu Frank, en hann var sá eini af fjölskyldunni sem komst lífs af úr Helför nasista. Bréfið var nafnlaust en þar var Van den Bergh sagður vera sá sem sveik fjölskylduna í hendur nasista.
Van den Bergh lést árið 1950 en Pankoke segir þó ekkert bendi til þess að van den Bergh hafi vitað nákvæmlega hvaða fjölskylda væri í felum hvar, þó að telja mætti líklegt að hann hafi vitað um heimilisföng þar sem vitað var að gyðingar væru í felum.