Skoðun

Hinir hljóðu og jafn­vel gleymdu fram­línu­starfs­menn

Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar

Í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum er mikið rætt um hvar álagið sé mest, margir hópar láta í sér heyra og þetta getur jafnvel farið að hljóma eins og einhverskonar keppni í hver hefur það verst og hver sé undir mestu álagi

Það er ekkert launungarmál að það er mikið álag á þjóðarsjúkrahúsi allra landsmanna og á heilsugæslunni. Komið hefur fram í fréttum að það standi til að launa framlínustarfsfólki LSH sérstaklega fyrir að standa vaktina undir þessu álagi. Sem er frábært og eiga þau það öll án efa skilið. Víða annars staðar í velferðarþjónustu starfar stór hópur fólks, hljóður hópur fólks, t.d. á hjúkrunarheimilum, heilbrigðisstofnunum og sambýlum. Þessi hópur sinnir umönnun aldraðra, hrumra og langveikra og hefur covid-19 haft mikil áhrif á störf þeirra.

Hvert einasta hjúkrunarheimili og hver einasta stofnun fer heldur ekki varhluta af heimsfaraldrinum. Margt starfsfólk er frá vegna sóttkvíar og einangrunar. Það veldur auknu álagi á samstarfsfólk sem veldur álagi á aðra starfsmenn sem vinnur meira, hraðar og taka hverja aukavaktina á fætur annarri til að mögulegt sé að sinna grunnþörfum íbúa og skjólstæðinga.

Nánast hvert einasta hjúkrunarheimili og margar stofnanir hafa eða eru að sinna íbúum og skjólstæðingum sem eru í sóttkví og/eða einangrun vegna Covid-19. Þeim sinnir þessi hópur þegjandi og hljóðalaust í hlífðarbúnaði í vaktavinnu allan sólarhringinn.

Ég þori að fullyrða að næstum hver einasti starfsmaður hjúkrunarheimilis hefur nánast verið í sjálfskipaðri sóttkví í hverri einustu bylgju sem yfir okkur hefur gengið. Enda sýna tölur frá afdrifum faraldursins á þennan hóp á Íslandi það glögglega. Hræðslan við að smita íbúaog skjóstæðinga er mikil og fólk upplifir hræðslu vegna hugsanlegrar smitskammar sem á alls ekki við rök að styðjast, sér í lagi við þessu afbrigði sem geisar núna. Sem er líkt og vatn sem flæðir allstaðar að og við komumst ekki hjá. Sem betur fer er afbrigðið einnig vægara hjá flestum í þessum hópi skjólstæðinga. Margt starfsfólk tekur „covid-stöðuna“ á sér fyrir hverja vakt og kvíðir hverjum einasta degi. Þau mæta samt til vinnu alveg sama hvað og standa sig eins og hetjur við að sinna þeim sem þurfa á aðstoð að halda.

Þetta fólk á svo sannarlega skilið fjárhagslega umbun frá yfirvöldum og hrósum frá samfélaginu. Ég er allavega ótrúlega stolt og hreykin af því að tilheyra þessum starfsmannahópi.

Höfundur er framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs Eirar, Skjóls og Hamra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×