Haley er 22 ára gömul og leikur í stöðu miðvarðar en hún er að koma úr háskólaboltanum í heimalandi sínu, Bandaríkjunum.
Þar lék hún með Weber State háskólanum í Utah.
Hún er þriðja Bandaríkjakonan til að semja við ÍBV í vetur því áður höfðu þær Sydney Carr og Ameera Hussen gert samning við Eyjaliðið sem hafnaði í sjöunda sæti Pepsi Max deildarinnar á síðustu leiktíð.
ÍBV hefur leik á komandi leiktíð þann 26.apríl næstkomandi þegar Stjarnan heimsækir Hásteinsvöll.