Atvikið átti sér stað í nóvember 2019 en þá voru lögregluþjónar kallaðir til verslunar í West Palm Beach þar sem John Monroque var sakaður um að vera í leyfisleysi. Tveir lögregluþjónar mættu á vettvang, þeir Nicholas Lordi og Jamesloo Charles.
Í frétt AP fréttaveitunnar segir að Charles hafi veri að skoða skilríki Monroque þegar Lordi sló hinum 65 ára gamla manni í húdd lögreglubílsins. Við það hófust átök þeirra á milli og reyndu lögregluþjónarnir að handjárna Monroque.
Að endingu lágu Monroque og Lordi í götunni þar sem lögregluþjónninn hékk á baki Manroque og sló hann ítrekað í andlitið. Á engum tímapunkti sló Monroque til baka. Lordi settist svo á Monroque og sló hann nokkrum sinnum í höfuðið til viðbótar svo hann nefbrotnaði, þar til vegfarandi reyndi að stöðva hann.
Charles, hinn lögregluþjónninn, stöðvaði vegfarandann þó.
Monroque var handjárnaður þar sem hann lá meðvitundarlaus í götunni.
Þegar hann rankaði við sér streittist Monroque á móti en við það sett Lordi hné sitt og líkamsþunga á höfuð Monroque. Þetta var nokkrum mánuðum áður en lögregluþjónn myrti George Floyd í Minneapolis í Bandaríkjunum með sambærilegum aðferðum.
Myndband af atvikinu má sjá í meðfylgjandi frétt NBC News.
Monroque var fluttur á sjúkrahús vegna nefbrotsins og varði tuttugu dögum í varðhaldi. Málið gegn honum var fellt niður ári síðar. Við skýrslutöku árið 2020 sagði Lordi að Monroque hefði sýnt sér vanvirðingu, ekki hlýtt skipunum og streist á móti. Hann sagði rannsakendum að hann hefði neyðst til að beita valdi þegar Monroque hafi reynt að grípa í byssu Charles.
Þá sagðist Lordi hafa slegið Monroque nokkrum sinnum í andlitið til að fá hann til að hætta að streitast á móti.
Rannsókn leiddi þó í ljós að orð hans voru ekki í takti við það sem gerðist.
Lögmenn Monroque segja Lordi eiga sér sögu valdbeitingar en opinber gögn sýna að honum hefur áður verið refsað fyrir hegðun og hafi minnst fimmtán sinnum beitt valdi frá 2015.