Fyrri undanúrslit Söngvakeppninnar fóru fram í kvikmyndaverinu í Gufunesi í kvöld og kepptu fimm lög um að verða framlag Íslands í Eurovision sem fram fer í Tórínó á Ítalíu þetta árið.
Áðurnefnd lög hlutu flest atkvæði í símakosningu í kvöld og fara beint í úrslit. Önnur tvö lög verða valin áfram næsta laugardagskvöld í seinni undanúrslitum. Auk þeirra hefur framkvæmdastjórn keppninnar leyfi til að hleypa einu lagi áfram til viðbótar telji hún það einnig eiga erindi í úrslitin.
Lögin sem komust ekki áfram í kvöld voru Don't You Know með Amarosis, Gía með Haffa Haff og Hjartað mitt í flutningi Stefaníu Svavarsdóttur. Eitt þeirra á enn möguleika á því að komast í úrslitin ef atriðið er valið af framkvæmdastjórn keppninnar.