Skoðun

Orkuöryggi á ófriðartímum

Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Því miður þarf oft alvöru átök til að vekja fólk þegar kemur að orkuöryggismálum þjóða. Sagan hefur samt margoft sýnt okkur að jarðefnaeldsneyti er ekki alltaf friðsælasta orkan sem völ er á. Hvað olíu varðar er ástæðan ósköp einföld, öll ríki þurfa olíu en aðeins örfá ríki framleiða olíu. Þetta eitt og sér skapar valdaójafnvægi sem oft hefur valdið titringi á alþjóðasviðinu.

Alþjóðaviðskipti eru alls ekki slæm, heldur eru þau í raun frábær leið til að stuðla að auknum gæðum og meiri hagkvæmni í vöruframleiðslu. Þegar kemur að grunnþörfum eins og orku og fæðu getur hinsvegar verið óþægilegt að vera algerlega háður öðrum ríkjum varðandi lífsnauðsynjar. Með jarðhitavæðingu hér á landi stigu Íslendingar risastórt skref í orkuöryggismálum þó að það hafi stundum gleymst, enda eiga jákvæð efnahags- og umhverfisháhrif jafnan sviðsljósið. Ef Ísland væri olíukynt, eins og algengt var fyrir nokkrum áratugum, þyrfti mögulega um 25 þúsund olíutunnur á dag til að anna húshitun á Íslandi. Slík staða væri hálf óhugnanleg í ljósi þeirra átaka sem nú eru í gangi í heiminum.

Tökum næstu skref

Íslendingar eru óþægilega háðir olíu í vegasamgöngum enda er olía í vegasamgöngum í raun blóðið í æðakerfi hagkerfisins. Án innflutnings á olíu myndi þjóðfélagið nánast lamast á örfáum mánuðum. Nú eru að skapast forsendur til að klára orkuöryggismál þjóðarinnar að miklu leyti með orkuskiptum vegasamgangna. Vegferðin er hafin og nú er þjóðin ekki lengur 100% háð innfluttri olíu í vegasamgöngum. Nú þegar eru um 13% fólksbifreiða í umferð á Íslandi knúnar innlendri orku að hluta eða öllu leyti og undanfarna mánuði hafa fólksbifreiðar með innstungu verið um og yfir 70% af nýskráðum fólksbílum. Þó að langstærsti hluti bifreiða á götum landsins sé enn keyrður á innfluttri olíu, þá eru nýorkubílar farnir að leggja örlítið af mörkum við orku- og þjóðaröryggi landsins. Gróflega má áætla að nýorkufólksbílar á götum landsins í dag séu að minnka olíuinnflutning landsins um 20 milljón lítra á ári eða rúmlega 300 tunnur á dag. Þetta er þó ekki allt, því að um 600 sendibifreiðar ganga nú á innlendri orku, auk um 30 hópbifreiða. Nú þarf að sýna djörfung og hraða þessum jákvæðu umskiptum. Hættum að nýskrá glænýja bensín- og dísilbíla og hröðum orkuskiptavegferðinni þegar kemur að atvinnubílum.

Fleiri leiðir

Enn fleiri skynsamlegar leiðir finnast líka, til að draga úr innflutningi á olíu og auka þannig þjóðaröryggi landsins. Breyttar ferðavenjur er eitthvað sem allir geta tileinkað sér og snúast ekki bara um að losa sig algerlega við einkabílinn heldur tileinka sér bílminni lífsstíl. Heimavinna, sam- og sparakstur og almenningssamgöngur geta t.d. skilað miklum árangri auk þess sem rafhjól og rafskútur eru að verða sífellt áhugaverðari kostur þegar að kemur að fækkun bílferða. Einn dagur á viku sem afgreiddur er með heimavinnu, hjólreiðum, samakstri eða almenningssamgöngum getur minnkað olíunotkun og þar með olíukostnað heimilis um 15%. Vissulega henta þessir kostir ekki öllum, en örugglega nógu mörgum til að hægt sé að minnka olíunotkun umtalsvert og færa okkur enn nær fullkomnu orkuöryggi sem ætti að vera innan seilingar á næstu áratugum.

Höfundur er sviðsstjóri loftslagsmála, orkuskipta og nýsköpunar hjá Orkustofnun.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×