Ástkona Vladímír Pútíns er sögð vera hin 38 ára gamla fyrrum fimleikadrottning Alina Kabaeva og eiga þau börn saman. Sportbladet í Svíþjóð er meðal miðla sem fjalla um málið.
Það fylgir sögunni að Kabaeva hafði verið í felum í fjallakofa í Sviss síðan í desember ásamt börnum þeirra sem er sögð verða orðin fjögur talsins.

Það hefur nefnilega lítið verið gefið upp um einkalíf Rússlandsforseta en leynifjölskyldu Pútín er nú undir rannsókn af yfirvöldum í Sviss. Kabaeva er 38 ára gömul en Pútín er 69 ára eða meira en þrjátíu árum eldri en hún.
Kabaeva er sjálf mikil stjarna frá ferli sínum í nútímafimleikum. Hún vann Ólympíugull í fjölþraut Aþenu 2004 og hefur einnig unnið fimmtán gullverðlaun á heimsmeistaramótum og níu gullverðlaun á Evrópumeistaramótum. Alls vann hún 57 verðlaun á stórum mótum á ferli sínum.
Hún varð heimsmeistari í fjölþraut í nútímafimleikum 199 og 2003 og Evrópumeistari í fjölþrautinni í nútímafimleikum 1998, 1999, 2000, 2002 og 2004.
Pútín hefur náttúrulega verið stanslaust í umræðunni í fjölmiðlum síðan að innrásin hófst og nú virðast blaðamenn hafa fengið það staðfest að Kabayeva sé í raun leynikærasta forsetans. Rússneski miðillinn sem sagði frá sambandi þeirra árið 2008 en var stuttu síðar lagður niður.
Götublaðið New York Post sagðist fyrr í mánuðinum hafa heimildir fyrir því að Pútín feli fjölskyldu sína í fjallakofanum í Sviss. Hún er sögð hafa eignast eitt barna Pútín á sjúkrahúsi í Lugano í mars 2015. Svissneski miðillinn Blick sagði frá því að Pútín hafi mögulega verið viðstaddur fæðinguna því hann kom ekki fram opinberlega á sama tíma.
Reunite Eva Braun with her Führer! #putin's mistress Alina Kabayeva, former MP and head of major pro-#kremlin media group is reportedly hiding in a luxury Swiss chalet with their joint children. Despite the current war, #Switzerland continues to host an accomplice of a murderer pic.twitter.com/tiPFusomj3
— Inna Sovsun (@InnaSovsun) March 22, 2022
Það ýtir undir þessar sögur að Kabayeva hefur ekki sést opinberlega síðan í desember á síðasta ári. Hún er sögð halda sig í Alpabænum Ticino í Sviss.
Sjónvarpsstöðin RTS segir frá því að svissnesk yfirvöld hafi miklar áhyggjur af ímynd Sviss út á við vegna þessa mál. Svisslendingar hafa stutt refsiaðgerðir Evrópusambandsins á hendur Rússum.