Seinni bylgjan: Ásbjörn í miklu basli eftir kinnhestinn Sindri Sverrisson skrifar 29. mars 2022 10:01 Strákarnir í Seinni bylgjunni leyfðu sér að grínast aðeins með markametsfíaskóið eftir að í ljós kom að 500 mörk vantaði upp á til að Ásbjörn Friðriksson næði metinu. Stöð 2 Sport „Þetta var ljótt djók. Þetta er bara leiðinlegt fyrir hann,“ sagði Róbert Gunnarsson um FH-inginn Ásbjörn Friðriksson í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir gríninnslag tengt markametsfíaskóinu í síðustu viku.
Ásbjörn náði sér engan veginn á strik gegn Stjörnunni um helgina þegar FH tapaði 27-24 á heimavelli, eftir sigurinn frækna gegn Val í síðustu viku. Hann skoraði úr þremur af níu skotum sínum. Svo virtist sem að það sæti í Ásbirni að hafa haldið að hann hefði slegið markametið í efstu deild en svo verið sviptur því rækilega daginn eftir þegar blaðamaðurinn Óskar Ófeigur Jónsson upplýsti þjóðina um það að Valdimar Grímsson hefði skorað tæplega 500 mörkum meira. Raunar hefur skotnýting Ásbjörns verið slæm alveg frá markinu gegn Val sem FH-ingar héldu að hefði tryggt honum markametið: „Frá þessu marki hefur Ásbjörn verið í basli. Hann er með hræðilega skotnýtingu alveg frá því að hann skoraði þetta mark og Óskar Ófeigur gaf honum eiginlega kinnhest,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, og birti innslag með tilvísun í fíaskóið á Óskarsverðlaunahátíðinni. „Mér finnst þetta aðallega bara mjög leiðinlegt fyrir hann,“ sagði Róbert og fann til með Ásbirni, rétt eins og Ásgeir Örn Hallgrímsson. „Já, hann átti engan þátt í þessu,“ bætti Ásgeir við. Klippa: Seinni bylgjan - Ásbjörn átt erfitt uppdráttar
Seinni bylgjan Olís-deild karla FH Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Fótbolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti Fleiri fréttir Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sjá meira