Hamilton hefur byrjað svo illa að hann er þegar búinn að gefa upp vonina að vinna sinn áttunda heimsmeistaratitil á ferlinum á þessu ári þrátt fyrir aðeins sé búnar fjórar keppnir af 23 á tímabilinu.
„Ég er dottinn út úr keppninni um heimsmeistaratitilinn. Það er pottþétt. Engin spurning um það,“ sagði Lewis Hamilton eftir erfiðan dag á Imola-brautinni.
Það er ljóst að öllu að hann er búinn að afskrifa Mercedes-bílinn sinn í baráttunni því nóg af stigum er enn í pottinum enda nítján keppnir eftir.
Hamilton er eins og er í sjöunda sæti í keppni ökumanna en hann endaði í þrettánda sæti í keppninni á Ítalíu um helgina.
Hamilton er með 28 stig sem eru 58 stigum færra en Charles Leclerc hjá Ferrari sem er í forystu. Heimsmeistari síðasta tímabils, Max Verstappen, er 27 stigum frá toppnum en 31 stigi á undan Hamilton.
Lewis náði þriðja sæti í fyrstu keppninni en hefur síðan ekki komist á pall og hefur aðeins fengið þrettán stig í síðustu þremur keppnum þar sem hann endaði í tíunda sæti, fjórða sæti og þrettánda sæti.