Til fundarins koma fulltrúar Bankasýslunnar, þeir Jón Gunnar Jónsson forstjóri og Lárus Blöndal stjórnarformaður. Fundurinn verður opinn almenningi meðan húsrúm leyfir og hægt er að fylgjast með fundinum í spilaranum hér fyrir neðan.
Upphaflega átti að halda fundinn á mánudag en á seint á sunnudag var tilkynnt að honum yrði frestað, fulltrúum stjórnarandstöðunnar til mikillar óánægju. Fram hefur komið að Bankasýslan hafi óskað eftir aukafresti svo hún gæti klárað minnisblað sem fjárlaganefnd hafði óskað eftir.
Bankasýslan birti minnisblaðið í gær en þar kemur meðal annars fram að fjöldi lágra áskrifta í útboðinu á 22,5 prósent hlut ríkisins á Íslandsbanka hafi komið stofnuninni á óvart. Hvergi hafi þó komið fram hugmyndir um að setja viðmið um lágmarksupphæð við stjórnsýslulega- og þinglega meðferð í aðdraganda útboðsins. Stofnunin telur að almennt hafi útboðið tekist vel, en betur hafi mátt kynna fyrir sölufyrirkomulagið fyrir almenningi.
Órökrétt að tala um „litla fjárfesta“
Hluti af gagnrýninni á framkvæmd útboðsins á hlutum ríkisins í Íslandsbanka snýr að þátttöku fjárfesta sem keyptu fyrir tiltölulega lágar fjárhæðir. Þannig tóku 22 aðilar þátt í útboðinu fyrir minna en tíu milljónir, allt niður í rúmlega eina milljón króna.
Í minnisblaði Bankasýslunnar segir að órökrétt sé að tala um „litla fjárfesta“ því að útboðinu hafi verið beint að hæfum fjárfestum og öðrum ekki. Þá kemur fram að Bankasýslan og mögulegir söluráðgjafar hafi framkvæmt frummat á markaðssaðstæðum í aðdraganda útboðsins og fengið nokka góða mynd af áhuga stærri aðila. Að auki var þess vænst að einkafjárfestar myndu hafa huga á að taka þátt.
Ekki hafi verið sett nein lágmarksfjárhæð á tilboð í útboðinu. Ekkert hafi komið fram um að slíkt væri æskilegt í stjórnsýslulegri umfjöllun málsins hjá ríkisstjórn eða í kynningum Bankasýslunnar fyrir þingnefndum.
Í minnisblaðinu segir stofnunin að hún telji að útboðið hafi almennt tekist vel út frá fjárhagslegum markmiðum. Framkvæmd þess hafi verið í fullu samræmi við lýsingu stofnunarinnar um sölu með tilboðsfyrirkomulagi. Einnig hafi það verið í samræmi við þær upplýsingar sem stofnunin kynnti fyrir fjárlaganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd.