Skoðun

Farsæld Árborgar

Dagbjört Harðardóttir og Lieselot Simoen skrifa

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi nú um áramót, farsældar lögin svokölluðu. Þau hafa það að markmiði að börn og fjölskyldur þeirra hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Á mannamáli þýðir það að fjölskyldur eigi rétt á því að fá þjónustu við sitt hæfi þar sem þverfaglegt teymi tekur utan um mál barnsins. Forðast þarf að fjölskyldur finnst mál þeirra í lausu lofti.

Árborg í góðri stöðu

Óhætt er að segja að fjölskyldusvið sveitarfélagsins Árborgar hafi unnið frábært starf á þessum vettvangi frá stofnun þess árið 2019. Þá voru skólaþjónusta, félagsþjónusta og frístunda- og menningarsvið sameinuð í eitt stórt svið. Sviðið var stofnað með því markmiði meðal annars að móta samfellda þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Farsældarlögin miðast við samspil félagsþjónustu, skólamála og frítímaþjónustu og því hægt að segja að sameiningin hafi verið fyrsta skrefið í þágu farsældar barna í Árborg. Árborg var því í mjög góðri stöðu og langt á veg komin með þessa samþættingu þegar lögin voru samþykkt á Alþingi. Staðan hefur verið það góð innan sveitarfélagsins eftir breytingarnar að eftir því hefur verið tekið og önnur sveitarfélög líta til Árborgar sem fyrirmyndar í útfærslu laganna.

Unnið hefur verið markvisst með snemmtæka íhlutun, hún felst í því að grípa sem fyrst inn í málefni barna og koma í veg fyrir að þau vindi upp á sig og verði ill leysanleg.

Gerum gott betra

Alltaf er hægt að gera gott betra og það er hjartans mál fyrir Áfram Árborg að styðja við fjölskyldusvið og tryggja það að sú góða og dýrmæta vinna sem nú þegar hefur verið unnin haldi sér, vaxi og dafni. Áfram Árborg vill tryggja að leikskólar og grunnskólar fái stuðning frá sviðinu til þess að innleiða Farsældarlögin að fullu svo þjónustan skili sér þangað sem hennar er þörf. Áfram Árborg telur mikilvægt að styðja við það öfluga frumkvöðlastarf sem fram hefur farið á vettvangi frítímans í Árborg þannig að þar sé hægt að halda áfram að vera til staðar fyrir börn og fjölskyldur þeirra ásamt því að vera stuðningur við félags- og fræðslumál.

Áfram Árborg vill skapa fjölskylduvænt samfélag, efla menntun ásamt félagslegum- og frístunda úrræðum fyrir fjölskylduna í heild. Áfram Árborg vill færa þjónustuna nær íbúum og uppfæra þjónustuna í takt í fjölbreyttar þarfir íbúa.

Framtíðin er núna!

Setjum X við Á þann 14. maí næstkomandi!

Höfundar eru frambjóðendur í félagsmálanefnd fyrir Áfram Árborg.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×