Skoðun

Betri Kópa­vogur fyrir alla

Thelma Bergmann Árnadóttir skrifar

Framboð Vina Kópavogs er ekki sprottið af engu. Borið hefur á gagnrýni á neikvæða umræðu af okkar hálfu. Staðan er einfaldlega sú að þegar gengið er yfir mörk fólks, þá er jákvæðni ekki það sem kemur fyrst í hugann. Í stað þess að nöldra ofan í koddann ákvað góður hópur fólks að gera frekar eitthvað í málunum. Úr því spratt framboð Vina Kópavogs, sem hefur að geyma ótrúlega breiðan hóp fólks, með allskonar þekkingu og reynslu sem öll nýtist í bæjarstjórn, og er í raun stærsti styrkleiki framboðsins. Ef við komumst til áhrifa þá eru jákvæðar breytingar framundan. Við ætlum alls staðar að beita okkur fyrir almenning en ekki sérhagsmunina. Við viljum ekki styðja við að kjósendur þurfi að verja meiri tíma í bíl en fólk neyðist til í dag. Við viljum hugsa og efla þjónustu við íbúa svo að fólk og fjölskyldur blómstri í Kópavogi. Leikskólana og skólana leggjum við áherslu á að efla og samræma til að börnunum í öllum hverfum Kópavogs líði vel, og foreldrum þeirra líka. Það er nefnilega staðreynd að sterk tengsl eru milli líðanar foreldra og barna.

Við viljum vinna með öryrkjum og fötluðum og ganga úr skugga um að ekki sé gengið á rétt þeirra og aðgengi í framkvæmdum bæjarins. Aðgengi þeirra á alltaf að vera í forgrunni og ekki má taka skref afturá bak í þeim málum. Við viljum efla lífsgæði samferðamanna okkq4. Við viljum líka standa vörð um íþrótta og menningastarf í bænum. Við viljum einfaldlega eiga gott samráð og samvinnu við bæjarbúa, gæta hagsmuna þeirra allra og byggja mannvænt samfélag sem gott er að búa í.

Okkar helsta áherslumál eru virðing við íbúa og skipulagsmál. Við höfum fengið mikið lof fyrir það, en líka verið spurð um önnur málefni. Ég vek athygli á að skipulagsmálin, framtíðarsýnin sem mótuð er í skipulægi, tengis flest öllum viðfangsefnum sveitafélaga á einhvern hátt. Þetta helst allt í hendur. Leikskólamál tengjast skipulagsmálum, heilbrigðismál tengjast skipulagsmálum, málefni aldraðra og öryrkja tengjast skipulagsmálum. Málefni flóttafólks tengjast skipulagsmálum, og lengi mætti telja. Óskipulag og óhófleg þétting á þröngu svæðum sprengir alla innviði sem þjóna íbúum bæjarins. Það er eitthvað sem hefur því miður gerst í nokkrum hverfum bæjarins, og það eru fordæmin sem fólk óttast. Stóra spurningin er, hvaða hverfi er næst? Vinir Kópavogs eru fyrir allan Kópavog, ekki bara þau hverfi sem lent hafa í átökum við bæinn vegna óhóflegrar þéttingar og álags á umferð og þjónustu svæðisins.

Frístundastyrkur barna

Eitt mál verð ég að minnast á sérstaklega: Mér finnst strax þurfa að taka ákvarðanir um aðfrístundastyrkurinn dekki amk tvær tómstundir barna svo að öll börn fái jöfn tækifæri, þegar kemur að því að velja sér tómstundir. Því miður er það svo að allt of mörg börn geta bara valið sér eina grein til að stunda, og sum hver ekki neina. Ég vil að við leiðréttum þessa skekkju.

Já takk.

Kæri kjósandi, sá sem nýtir kosningarétt sinn skilar aldrei „dauðu atkvæði“. Hann tekur afstöðu um hvernig samfélag hann vill sjá þróast.

Nú er mál að rísa upp, og segja „já takk“ við alvöru hagsmunagæslu fyrir íbúa og íbúalýðræði, vönduðum vinnubrögðum, jafnræði og fyrirsjáanlega. Með því að seta X við Y gerirðu það.

Höfundur er fjármálastjóri




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×