Fréttastofa fékk þær upplýsingar frá yfirkjörstjórn að ný kosningalög tefji talningu. Þannig sé „reyndasta talningafólk landsins“ að fara að nýjum reglum er varðar verklag við talningu.
Oddvitarnir mættu flestir upp í Efstaleiti klukkan 23 þar sem þeir fóru allir í förðun fyrir kosningasjónvarp Ríkisútvarpsins. Eftir langa bið oddvitanna, sem margir eru með mökum sínum, hafa þeir ákveðið að yfirgefa Efstaleiti í bili hið minnsta og halda á fund stuðningsmanna sinna víða um höfuðborgarsvæðið.

Fréttastofa náði tali af Líf Magneudóttur, oddvita Vinstri grænna, sem er, eins og flestir aðrir oddvitar, orðin langþreytt eftir fyrstu tölum. Hún kveðst afar spennt en ekki hafa neina tilfinningu fyrir tölunum. Það sé ekki laust við þreytu eftir langa og stranga kosningabaráttu. Nú liggur fyrir að oddvitarnir þurfa að bíða aðeins lengur eftir fyrstu tölum.

Oddvitarnir munu fylgjast með fyrstu tölum í sínum kosningavökum.
Kokteill af ástæðum
Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík, segir ýmsar ástæður fyrir miklum töfum á fyrstu tölum úr Reykjavík.
„Það er kokteill af alls konar og maður er hundfúll því maður vill að plönin haldi,“ segir Eva.
Eurovision hafi valdið því að fyrri skammturinn af atkvæðum sé afar stór.
„Við erum í fyrstu umferð að telja 37 þúsund atkvæði og svo er nýtt fyrirkomulag að tefja okkar frábæra talningarfólk,“ segir Eva.