Lögreglan á Vesturlandi lét í dag fjarlægja styttuna úr málmhólki eftir að Landsréttur heimilaði slíka aðgerð á föstudag. Áður hafði Héraðsdómur Vesturlands hafnað kröfu lögreglunnar um að framkvæma leit í verkinu og frelsa þar með styttuna. Enginn hefur viljað gangast við þjófnaðinum.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, var á leið til Snæfellsbæjar með styttuna í skottinu þegar fréttamaður náði af honum tali en hann sótti styttuna hjá lögreglunni á Akranesi síðdegis í dag.
Hann segir að nú verði farið í það að skoða hvernig best sé að koma styttunni aftur fyrir á sínum stað. Ekki liggi fyrir hvenær því verki verði lokið.
„Málið er náttúrlega ekkert búið. Við erum búin að kæra þjófnaðinn og eignaspjöllin. Við höfum orðið fyrir tjóni og kostnaði við þetta. Ég er feginn með að vera kominn með styttuna en við eigum eftir að sjá hvernig við fáum þetta fjárhagslega tjón bætt sem við höfum orðið fyrir,“ segir Kristinn og bendir til að mynda á að festa þurfi styttuna upp á nýtt.
Hann vonar að einhver muni þurfa að svara til saka fyrir stuldinn á styttunni.
Hvarf og birtist svo á Granda
Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning um að styttan væri horfin 7. apríl síðastliðinn. Tveimur dögum síðar bárust lögreglu upplýsingar um að styttuna væri að finna inn í öðru verki sem staðsett væri við Nýlistasafnið á Granda í Reykjavík.
Listakonurnar Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir stigu í kjölfarið fram í fjölmiðlum og sögðust hafa komið henni fyrir í eldflaug á skotpalli. Um væri að ræða nýtt verk sem bæri heitið Farangursheimild: Fyrsta hvíta móðirin í geimnum. Vísar heitið til upprunalega verksins sem er afsteypa af styttu Ásmundar Sveinssonar af Guðríði og syni hennar og ber nafnið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Bryndís og Steinunn hafa gagnrýnt verkið og sagt það rasískt en þó ekki gengist við því að hafa stolið styttunni.
Rætt var við Bryndísi og Steinunni í fréttum Stöðvar 2 í apríl.
Þann 22. apríl lagði lögregla hald á seinna verkið en styttan af Guðríði er vel sjáanleg inni í eldflauginni.
Fram kemur í dómi Landsréttar að það sé mat lögreglu að nýja verkið sé notað sem geymslustaður fyrir styttuna. Þar sem ekki hafi fengist samþykki listakvennanna fyrir því að sækja styttuna inn í verkið í því skyni að handleggja hana hafi því þurft úrskurð dómara fyrir þeirri rannsóknaraðgerð.
Krafa lögreglunnar var byggð á 74. og 75. grein laga um meðferð sakamála sem heimilar leit í „húsum sakbornings, geymslustöðum, hirslum, skipum, loftförum, bifreiðum eða öðrum farartækjum hans í því skyni að handtaka hann, rannsaka andlag brots og önnur ummerki eða hafa uppi á munum sem hald skal leggja á.“
Verðmetur styttuna á þrjár milljónir króna
Héraðsdómur Vesturlands féllst ekki á þá kröfu lögreglunnar að eldflaugin yrði opnuð til að nálgast styttuna. Í úrskurðinum segir að einstaklingurinn sem hafi tilkynnt hvarfið til lögreglu hafi staðið fyrir kostnaði og uppsetningu styttunnar árið 2000 og telji að verðmæti hennar sé um það bil þrjár milljónir króna.
Verjandi listakvennanna krafðist þess að kröfu lögreglunnar yrði hafnað. Óumdeilt væri að verkið væri í höndum lögreglu og bronsstyttan þar inn í.
„Jafnframt sé um listaverk varnaraðila að ræða sem óskynsamlegt og ónauðsynlegt sé að skemma í þágu rannsóknar á málinu og brjóta þannig gegn réttindum varnaraðila sem einnig njóti verndar. Engir rannsóknarhagsmunir séu enda í málinu og enginn hafi stöðu sakbornings í því.“
Töldu listakonurnar réttari farveg að leita leiða til að ná samkomulagi og koma í veg fyrir skemmdir á verkinu.
Fram kemur í niðurstöðu héraðsdóms að dómurinn telji ekki óvarlegt að líta svo á að það verk sem konurnar kvæðust hafa búið til með aðgerðum sínum njóti einhverra höfundar- og sæmdarréttinda líkt og það verk sem fjarlægt var. Dómari vildi þó ekki slá neinu föstu um hvernig sú réttarstaða væri.
Héraðsdómur taldi ekki augljósa eða brýna rannsóknarhagsmuni vera fyrir hendi og hafnaði kröfu lögreglu. Lögreglustjórinn á Vesturlandi áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem féllst á að jafna mætti þeim mun sem styttuna innihéldi til hirslu í skilningi laga um meðferð sakamála. Jafnframt væru uppfyllt skilyrði til að fallast á kröfu lögreglunnar.