Yuliia Paievska, sem gengur undir nafninu Taira, gekk um með myndavél í um tvær vikur í mars og fangaði hið hræðilega ástand í borginni. Myndefni hennar sýnir hana fara um borgina og reyna að bjarga lífi fólks og flytja það á sjúkrahús.
Myndefninu kom hún til áðurnefndra blaðamanna AP skömmu áður en þeir fóru frá Maríupól. Þeir voru síðustu vestrænu blaðamennirnir í borginni.
Fylgjast má með nýjustu vendingum í Úkraínu hér í Vaktinni á Vísi.
Eitt myndband frá tíunda mars sýnir hana taka á móti tveimur rússneskum hermönnum sem voru særðir. Aðspurð hvort hún ætlaði að hlúa að þeim sagði hún: „Þeir yrðu ekki svo góðir við okkur en ég get ekki annað. Þeir eru stríðsfangar.“

Eftir að hún var handsömuð sökuðu Rússar hana um að vera í Azov-herdeildinni, sem Rússar segja nasista, en það segir AP fréttaveitan ekki vera rétt. Hún hafi engin tengsl við herdeildina.
Ríkisstjórn Úkraínu segist hafa reynt að fá Tairu bætt á lista fyrir fangaskipti en að Rússar segist ekki vera með hana í haldi. Það er þrátt fyrir að hún hafi sést í sjónvarpsútsendingum rússneskra fjölmiðla, með bundnar hendur og marin í andliti.
Það var 21. mars en síðan þá hefur engin séð til hennar.
Rússar eru sakaðir um að hafa handsamað og jafnvel rænt hundruðum manna og kvenna í Úkraínu. Mörg þeirra hafa verið pyntuð og myrt. Sameinuðu þjóðirnar segja að nýverið hafi rússneskir hermenn fjarlægt konu úr bílalest frá Maríupól og sakað hana um að vera bráðatækni í hernum.
Hún var handsömuð en ung dóttir hennar þurfti að fara ein í bílalestinni, samkvæmt starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna.
Frétt AP og hluta af myndefni Tairu má sjá í myndbandinu hér að neðan. Vert er að vara áhorfendur við því að myndefnið getur vakið óhug.