Skoðun

Hinn val­kosturinn í Reykja­vík

Katrín Atladóttir skrifar

Nú standa yfir meirihlutaviðræður í borginni milli hins fallna meirihluta og Framsóknar. Hinn fallni meirihluti, með smávægilegum blæbrigðamun, hefur farið með áhrif í borginni um nærri þriggja áratuga skeið. Endurreisn hans getur varla falið annað í sér en meira af hinu sama. Viðræðurnar geta varla endurspeglað þá breytingu sem kjósendur óskuðu eftir.

En er þetta eini valkosturinn í stöðunni?

Meirihluti framfara, sáttar og breytinga

Borðleggjandi væri að mynda meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Meirihluta sem hefði trúverðugleika til að ráðast í nauðsynlegar kerfisbreytingar og löngu tímabæra tiltekt á fjármálum borgarinnar. Meirihluta framfara, sáttar og breytinga.

Þessi meirihluti framfara gæti ráðist strax í úttekt á fjármálum og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar með það fyrir augum að ná fram aukinni hagræðingu og skilvirkni. Jafnframt gætu flokkarnir lækkað álagningarhlutfall fasteignaskatta umsvifalaust, sem viðbragð við gríðarlegri hækkun fasteignamats sem kynnt var í vikunni. Þá mætti draga úr samkeppnisrekstri borgarinnar og virkja betur einkaframtak.

Þessi meirihluti sáttar gæti náð vel saman um skipulagsmálin í borginni – jafnvel undir áframhaldandi forystu Viðreisnar. Borgarlínu mætti koma endanlega af teikniborðinu og tryggja skynsamlega fjármögnun, útfærslu og rekstraráætlun. Flýta mætti lagningu Sundabrautar í einkaframkvæmd og tryggja samhliða alvöru hjólaborg á heimsmælikvarða. Halda mætti áfram að þétta byggðina þar sem innviðir leyfa en jafnframt ráðast í kröftuga húsnæðisuppbyggingu á skynsamlegum framtíðarsvæðum, svo sem í Örfirisey og að Keldum. Jafnframt ættu flokkarnir að geta fundið samhljóm hvað varðar framtíð flugvallarins.

Þessi meirihluti breytinga gæti jafnframt unnið að fjölmörgum framförum í skólastarfi. Flokkarnir gætu unnið að raunverulegri lausn leikskólavandans og stutt betur við dagforeldrakerfið. Þá gæti loks reynst unnt að styðja betur við sjálfstætt starfandi skóla í borginni og annað einkaframtak í menntamálum. Auka mætti vægi list- og verkgreina í skólastarfi og tryggja stóraukna tæknikennslu í öllum grunnskólum borgarinnar, ekki síst forritunarkennslu.

Þá gæti hinn nýi meirihluti stutt betur við atvinnulíf, nýsköpun og menningu. Skipuleggja mætti fleiri atvinnulóðir og tryggja hagstæðara skattaumhverfi fyrir verðmætasköpun. Skipuleggja mætti nýsköpunarþorp um loftslagsmál í Örfirisey í samstarfi við einkaaðila. Koma mætti Reykjavíkurborg í forystu hvað varðar orkuskipti á landi, sjó og lofti. Tryggja mætti menningarborg á heimsmælikvarða sem yrði lifandi aðdráttarafl ferðamanna og erlendra sérfræðinga. Tækifærin eru óþrjótandi.

Nýir vendir sópa best

Nýr meirihluti framfara, sáttar og breytinga gæti haft tilfinnanleg áhrif til batnaðar í Reykjavík. Áfram mætti halda með þau jákvæðu mál sem þegar eru í farvegi – en styðja framgang mikilvægra framfaramála sem kjósendur hafa ítrekað kallað eftir.

Það er kominn tími á breytingar í Reykjavík. Um það var meginþorri kjósenda sammála. Þeim breytingum mætti ná fram með kröftugum endurnýjuðum meirihluta í Reykjavík.

Nýir vendir sópa nefnilega best – og ekki er vanþörf á í Reykjavík.

Höfundur er fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×