Skoðun

Hvernig vill full­orðna fólkið hafa Laugar­dalinn?

Ævar Harðarson skrifar

Kæru íbúar í Laugardal. Viljið þið taka þátt í netkönnun um hvernig hægt er að gera borgarhlutann ykkar enn betri? Netkönnunin er hluti af hluti af hugmynda- og upplýsingaöflun vegna vinnu við hverfisskipulag í ykkar borgarhluta, sem nær til hverfanna Laugarnes, Langholt og Voga. Innan þessara hverfa eru hverfiseiningar eins og Tún, Teigar, Lækir, Laugarás, Sund, Langholt, Heimar og Voga ásamt nýjum hverfishlutum við Kirkjusand og í nýju Vogabyggðinni. Útivistar- og Íþróttasvæðið í Laugardalnum tengist þessari vinnu órjúfanlegum böndum sem mikilvægt almenningsrými fyrir íbúa í þessum hverfum sem og allra borgarbúa.

Börnin hugmyndarík

Hugmyndasöfnun vegna hverfisskipulags byrjað í mars með opnu húsi sem stóð dagana 28. mars til 3. apríl undir stúkunni á Laugardalsvellinum. Þá komu í heimsókn um 1.300 nemendur úr öllum fjórum skólunum í borgarhlutanum og um 250 fullorðnir íbúar. Gestir á opna húsinu lögðu fram um 4.800 ábendingar og hugmyndir. Samtímis fór fram netkönnun um ferðaleiðir og nýtingu á almenningsrýmum í Laugardalnum sem um 400 manns tók þátt í.

Mikið af þeim hugmyndum sem hafa safnast snúa að því hvernig bæta megi þjónustu í hverfunum og gera þau öruggara sérstaklega fyrir börn. Fjöldi hugmynda fjalla um málefni íþrótta- og útvistarsvæðisins í Laugardal og hvernig mengi bæta íþrótta- og leikaðstöðu fyrir börn og ungmenni.

Laugardalurinn úr lofti.Mats Wibe Lund

Byggt á öllum þessum hugmyndum, sérstaklega frá börnunum, verður hægt að þróa mjög góðar skipulagstillögur um hvernig gera má hverfin í Laugardal afbragðs góð fyrir börn. Og góð hverfi fyrir börn er góð fyrir alla.

Í vinnu við hverfisskipulag þarf líka að taka mið af þörfum og sjónarmiðum hinna fullorðnu. Þess vegna leitum við nú til ykkar kæru íbúar eftir hugmyndum um hvernig bæta megi hverfið. Það getið þið gert með því að taka þátt í netkönnun okkar hér: Borgarhluti 4 – Laugardalur.

Ný torg og borgargötur

Netkönnunin verður opin i tvær viku. Niðurstöður úr henni ásamt hugmyndum frá börnum verð notaðar til þess að þróa vinnutillögur hverfisskipulags fyrir Laugardalinn sem verða kynntar fyrir íbúum og hagsmunaaðilum í haust. Þetta verður gert með sérstakri sýningu og kynningarsíðu þar sem leitað verður álits íbúa enn á ný en samráð og þátttaka íbúa er afar mikilvægur hluti af vinnu við hverfisskipulag.

Allar upplýsingar um vinnu við hverfisskipulagið í Laugardal og netkönnunina er hægt finna á sérstakri kynningarsíðu sjá hér

Leggið ykkar af mörkum og hjálpið okkur við að vinna gott hverfisskipualg fyrir ykkar hverfi. Þið vitið best hvað vantar í þar: Hvernig og hvar þarf að bæta samgöngur til að gera þær öruggari og betri fyrir akandi, hjólandi og fótgangandi. Hvar á að leggja borgargötur og byggja upp hverfistorg. Hvernig bæta má verslun og þjónustu og byggja upp atvinnutækifæri innan hverfana. Hvar best er að bæta og styrkja aðstöðu til útivistar, leikja og íþrótta og hvar má byggja nýjar íbúðir sem mikill skortu er á í borginni um þessar mundir.

Höfundur er deildarstjóri Hverfisskipulag Reykjavíkur/ Ph.D. arkitekt. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×