Flugvélin tók á loft frá Reykjarvíkurflugvelli klukkan 10:38 þann 3. febrúar síðastliðinn með flugmann og þrjá farþega innanborðs. Farið var að grennslast eftir flugvélinni rétt fyrir klukkan eitt eftir að vélin var komin fram yfir áætlaðan lendingartíma í Reykjavík.
Sjö sekúndur í lítilli hæð
Á myndskeiðum sem tekin voru um borð í flugvélinni heyrist þegar afl minnkar á hreyfli og flugvélin lækkar í kjölfarið flugið að vatnsyfirborðinu. Einnig má sjá á myndskeiðunum að ís hafi verið að myndast í Ölfusvatnsvík. Ísinn virðist hafa verið mjög þunnur og með stórar vakir á milli.
Öryggismyndavél við Þingvallavatn sýnir flugvélina lækka flugið í átt að vatninu. Því næst beygir flugvélin til vinstri (til vesturs) og lækkar í kjölfarið flugið enn frekar að vatninu. Þá segir í skýrslunni að flugvélin virðist fljúga í mjög lítilli hæð yfir vatninu í um sjö sekúndur áður en hún hafnar í því.

Neyðarlínunni barst símtal
Þá segir í skýrslunni að engin merki hafi borist frá neyðarsendi vélarinnar við flugslysið. Neyðarlínunni hafi þó borist nokkurra sekúndna símtal frá klukkan 11:51 en rakning á símtalinu leiddi í ljós að það barst úr síma eins farþegans. Ekki voru nein greinileg samskipti í símtalinu en í því hafi mátt heyra í einhverjum í neyð.
Kafbátur var notaður til að skanna botn Ölfusvatnsvíkur í Þingvallavatni. Um klukkan 22:10 þann 4. febrúar fannst vélin á 47 metra dýpi í víkinni.
Neyðarsendir virkur en ekkert merki barst
Í myndskeiðum sem tekin voru af vélinni í kjölfarið fékkst staðfest að hún var mannlaus en fjögur lík fundust á botni Þingvallavatsn um 130 metrum suður af flugvélinni. Litlar skemmdir voru á vélinni sem frestað var að ná upp á yfirborð vegna mikillar ísmyndunar og frosts. Flugvélin var loks sótt af botni Þingvallavatns þann 22. apríl.

Raftæki voru fjarlægð úr vélinni og reyndist unnt að lesa gögn sem voru á minniskortum þeirra. Þar kom í ljós að neyðarsendir vélarinnar hafi verið virkur og farþegar í aftursætum hafi líklega ekki verið í sætisbeltum þegar slysið átti sér stað.
Rannsókn málsins er ekki lokið og er skýrslan er einungis gefin út til bráðbirgða. Áframhaldandi rannsókn málsins mun meðal annars fela í sér að greina af hverju engin merki hafi borist frá neyðarsendi vélarinnar.