„Fyrir þremur árum tóku gildi hér á landi lög um kynrænt sjálfræði. Þau „…kveða á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar.“ Þessi lög eru enn eitt framfaraskrefið í þá átt að tryggja réttindi borgaranna.“
Svona lýkur grein Ernu Bjarnardóttur, varaþingmaður Miðflokksins og Tómasar Ellerts Tómassonar, fyrrverandi bæjarfulltrúi sama flokks í Árborg. Þau virðast því á öndverðum meiði við Sigmund Davíð Gunnlaugsson í þessum málflokki sem hefur lengi talað gegn lögum um kynrænt sjálfræði og sumir hafa gengið svo langt að kalla orðræðu hans í málaflokki hinsegin- og transfólks hatursorðræðu.
Ekki í neinum ágreiningi við neinn
„Við Tómas Ellert vildum bara gera grein fyrir okkar sýn á þessi mál. Okkar sjónarmið eru formanni flokksins nokkuð kunn,“ segir Erna Bjarnadóttir í samtali við Vísi.
Eruð þið þá ósátt við hvernig Sigmundur hefur talað um þessi málefni síðustu ár og misseri?
„Ég tel bara að Miðflokkurinn eins og aðrir flokkar þurfi að taka umræðuna og vera með sín sjónarmið á hreinu. Við Tómas Ellert vildum bara hafa það alveg á hreinu hvar við stæðum í þessum málum.“

Hún segist vilja undirstrika að lögin um kynrænt sjálfræði hafi verið lengi í vinnslu og verið sett fram til að koma til móts við nýjan tíðaranda og tryggja réttindi allra.
„Við erum ekki í neinum ágreiningi við neinn, eins og ég segi höfum við átt samtöl við formann flokksins þannig við erum ekki að útmála neinn ágreining eða stilla þessu þannig fram. Við erum bara að segja frá því hver við erum.“
Erna vill að öðru leyti ekki tjá sig nánar um hvernig þau samtöl við Sigmund hafi verið.
Vill að menn haldi sig við stefnu flokksins
Varðandi gagnrýni á ummæli Sigmundar um kynsegin- og transfólk segir Erna að Sigmundur verði sjálfur að svara fyrir hana.
„Við viljum bara að það komi skýrt fram fyrir hvað við stöndum. Við getum sagt það að við sjáum ástæðu til að það sé skýrt hver okkar afstaða sé.“
Tómas Ellert Tómasson svarar á sama hátt og vill ekki svara beint hvort hann sé ósammála eða ósáttur við framgöngu Sigmundar og annarra þingmanna Miðflokksins í málaflokknum.

„Þetta er bara stefna Miðflokksins,“ segir Tómas í samtali við fréttstofu
„Ég vil bara að menn haldi sig við stefnu miðflokksins.“
Hann segist að lokum vilja leyfa öðrum að meta hvort að þingmenn Miðflokksins hafi farið út fyrir stefnu flokksins með orðræðu sinni um hinsegin- og transfólk.