Norður-Írinn Rory Mcllroy kemur þar á eftir en hann fór fyrsta hringinn á sex höggum undir pari og Ástralinn Cameron Smith og Englendingurinn Robert Dinwiddie eru í þriðja til fjórða sæti á fimm höggum undir pari.
A final look at the leaderboard before Round 2 tomorrow #The150thOpen #NTTDATAWall #NTTDATA #drivingdatafurther pic.twitter.com/Rl7kaFZ1sw
— The Open (@TheOpen) July 14, 2022
Athygli vekur en enski áhugakylfingurinn Barclay Brown lék fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari líkt og Norðmaðurinn Viktor Hovland og LIV-þátttakendurnir Lee Westwood, Dustin Johnson og Talor Gooch.
Þá komu Scottie Scheffler, sem er efstur á heimslistanum, Bandaríkjamaðurinn Kurt Kitayama og Ástralinn Brad Kennedy einnig í hús á fjórum höggum undir pari.
Collin Morikawa, sem á titil að verja, hóf titilvörn sína ekki vel en hann sló 72 högg sem er par vallarins.
Tiger Woods, sem hefur unnið þetta sögufræga mót þrisvar sinnum er ekki líklegur til afreka að þessu inni en hann spilaði á sex höggum yfir pari.