Minnst 32 létust þegar ekið var inn á vettvang tveggja slysa Árni Sæberg skrifar 20. ágúst 2022 19:19 Mikill viðbúnaður var á vettvangi þar sem mikill viðbúnaður hafði einnig verið skömmu áður. IHA/AP Sextán eru látnir og 21 slasaður eftir að rútu var ekið inn á vettvang fyrra umferðarslyss í Tyrklandi í dag. Meðal látinna eru slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn og fréttamenn sem sendir höfðu verið á vettvang. Fyrr í dag létust aðrir sextán og 29 slösuðust í sambærilegu atviki í Tyrklandi
Slysið varð í nágrenni borgarinnar Gazientep í suðurhluta Tyrklands í morgun. Borgarstjóri borgarinnar sagði á Twitter í dag að meðal látinna hafi verið þrír slökkviliðsmenn, tveir sjúkraflutningamenn og tveir fréttamenn. Í frétt breska ríkisútvarpsins um málið segir að rútunni hafi verið ekið inn á vettvang fyrra slyssins, oltið og runnið um tvö hundruð metra. Eftir það hafi nýr hópur viðbragðsaðila verið sendur á vettvang. Sambærilegt atvik í Mardin Fyrr í dag varð sambærilegt atvik þar sem flutningabíl var ekið inn á vettvang fyrra umferðarslyss í Mardin í Tyrklandi, sem er aðeins um 250 kílómetra austur af Gazientep. The Guardian hefur eftir Fahrettin Koca, heilbrigðisráðherra Tyrklands, að átta þeirra slösuðu séu í lífshættu. Í frétt The Guardian segir að umferðaröryggismál í landinu séu ekki með miklum sóma og að 5.362 hafi látist í umferðinni í Tyrklandi í fyrra. Fréttin var uppfærð eftir að fregnir bárust af slysinu í Mardin.
Tyrkland Mest lesið Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum Innlent Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Erlent „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Innlent Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi Innlent Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Innlent „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Innlent Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Innlent Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Erlent Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Innlent Fleiri fréttir Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Yngsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi heims endurkjörinn Áfrýjar í von um að geta boðið sig fram til forseta Ísraelsher réðst á sjúkrahús Síðasti stjórnarandstöðuflokkur Hong Kong verður leystur upp Biðja Trump um að sýna hörku vegna vatnsdeilna við Mexíkó Sjá meira