Klukkan ellefu tókst að skrúfa fyrir vatnið og segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Veitum að starfsfólk Veitna vinni nú að því að gera við lögnina.











Um klukkan tíu í kvöld fór kaldavatnslögn í sundur í Hvassaleitinu. Vatnið flæddi um hverfið eins og um straumþunga á væri að ræða. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari fréttastofunnar fór á vettvang, myndir af svæðinu má sjá hér að neðan.
Klukkan ellefu tókst að skrúfa fyrir vatnið og segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Veitum að starfsfólk Veitna vinni nú að því að gera við lögnina.
Stór kaldavatnslögn fór í sundur upp úr klukkan tíu í Hvassaleitinu og flæðir nú vatn um svæðið líkt og um straumþunga á sé að ræða. Bæði lögreglumenn og fulltrúar slökkviliðs eru mættir á svæðið til að gæta öryggis og reyna að leysa vandann.