Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með einum leik fimmtudaginn 15. september.
Íþróttadeild spáir Selfossi 7. sæti Olís-deildar kvenna í vetur og að nýliðarnir haldi sér í deildinni í fyrstu tilraun.
Sagan er ekki í liði með Selfyssingum. Síðustu þrjú lið sem hafa komið upp úr Grill 66-deildinni hafa fallið jafnharðan og stigasöfnunin hefur verið afar rýr. Afturelding fékk þrjú stig tímabilið 2019-20, FH ekkert stig 2020-21 og sömu sögu var að segja af Aftureldingu á síðasta tímabili.
Selfoss er nú mættur aftur í Olís-deildina eftir þriggja ára fjarveru. Svavar Vignisson stýrði Selfyssingum til sigurs í Grill 66-deildinni á síðasta tímabili en hætti störfum í sumar og við tók heimamaðurinn Eyþór Lárusson. Hans bíður það erfiða verkefni að halda Selfyssingum uppi.
Mikið mun mæða á næstum því alnöfnunum Tinnu Sigurrósu Traustadóttur og Tinnu Soffíu Traustadóttur. Sú fyrrnefnda er einn efnilegasti leikmaður landsins og langmikilvægasti leikmaður Selfoss. Sú síðarnefnda er svo límið í varnarleik Selfyssinga.
Þær Katla María Magnúsdóttir og Hulda Dís Þrastardóttir komu aftur á Selfoss ásamt hinni sænsku Corneliu Hermannsson en Hulda verður því miður ekkert með í vetur eftir að hafa slitið krossband í hné. Það er því spurning hvort Selfyssingar þreifi fyrir sér á félagaskiptamarkaðnum en þeir þurfa helst að styrkja liðið meira til að halda sér í deild þeirra bestu.
Gengi Selfoss undanfarinn áratug
- 2021-22: B-deild (1. sæti)
- 2020-21: B-deild (9. sæti)
- 2019-20: B-deild (3. sæti)
- 2018-19: 8. sæti
- 2017-18: 6. sæti
- 2016-17: 7. sæti
- 2015-16: 7. sæti+8-liða úrslit
- 2014-15: 8. sæti+8-liða úrslit
- 2013-14: 10. sæti
- 2012-13: 9. sæti
Lykilmaðurinn

Tinna Sigurrós Traustadóttir sópaði til sín verðlaunum á lokahófi HSÍ í vor. Hún var valin best, efnilegust og besti sóknarmaður Grill 66-deildarinnar auk þess að vera markadrottning hennar. Tinna sýndi svo hvað í hana er spunnið á HM U-18 ára í sumar. Gríðarlega öflug skytta sem getur skotið fyrir utan, með góð gegnumbrot og hörkuvarnarmaður. Tinna er mjög líkleg til að slá í gegn í vetur.
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnar:
- Katla María Magnúsdóttir frá Stjörnunni
- Hulda Dís Þrastardóttir frá Val
- Cornelia Hermansson frá Kärra (Svíþjóð)
Farnar:
- Mina Mandic til Aftureldingar
Markaðseinkunn (A-C): B
Fylgist með
Eftir dvöl hjá Stjörnunni er Katla María Magnúsdóttir komin aftur heim á Selfoss. Þessi hávaxna skytta fékk ef til vill ekki þau tækifæri sem hún vonaðist eftir í Garðabænum en verður væntanlega í stóru hlutverki hjá nýliðunum. Þarf að vera ógnandi vinstra megin svo andstæðingar Selfoss geti ekki bara beint athyglinni að Tinnu Sigurrósu.