Christian Sengfelder, leikmaður Þýskalands, var stigahæsti leikmaður vallarins með 22 stig. Þjóðverjar enda því B-riðil í öðru sæti á meðan Ungverjar er úr leik eftir að hafa tapað öllum fimm leikjum sínum á mótinu til þessa.
Þjóðverjar munu mæta Svartfjallalandi í 16-liða úrslitum á laugardaginn næsta en Svartfjallaland vann á sama tíma átta stiga sigur á Georgíu í A-riðli, 81-73.
Svartfellingurinn Igor Drobnjak var stigahæstur í sigri Svartfjallalands með 22 stig.