Síðast kom upp leki á einum af eldsneytistönkum Space Launch System-eldflaugarinnar, en starfsmenn NASA telja sig hafa lagað hann. Þá stendur til að prófa að fylla eldflaugina af eldsneyti þann 21. september og tryggja að viðgerðin hafi borið árangur og að önnur vandamál líti ekki dagsins ljós.
Í tilkynningu á vef NASA segir að þetta gefi starfsmönnum NASA meiri tíma til að ganga skugga um að allt verði klárt fyrir geimskotið eftir tvær vikur.
Skotglugginn svokallaði opnast 15:37 (að íslenskum tíma) og verður opinn í um sjötíu mínútur. Gangi ekki upp að skjóta geimfarinu af stað þann 27. september, er til skoðunar að reyna aftur þann 2. október.
Þá tilkynnti NASA einnig í gær að til standi að skjóta nýrri áhöfn til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar með eldflaug og geimfari SpaceX þann 3. október.
Vísindabúnaður og þrjár gínur
Þetta geimskot kallast Artemis-1. Um borð í Orion-geimfarinu verður mikið af vísindabúnaði sem vísindamenn vonast til að geta notað við undirbúning mannaðra geimferða framtíðarinnar.
Auk vísindabúnaðar verða þrjár gínur um borð. Þær kallast Commander Moonikin Campos, Helga og Zohar. Campos verður búinn fjölmörgum skynjurum og íklæddur sama búning og geimfarar munu vera í á næstu árum.
Umborð eru einnig smáir gervihnettir sem verða meðal annars notaðir til að leita að vatni á tunglinu og kortleggja yfirborð þess.

Í næsta geimskoti áætlunarinnar, Artemis-2 verður farin svipuð ferð en þá verða menn um borð. Í Artemis-3 verður svo reynt að lenda mönnum á yfirborði og verður það í fyrsta sinn sem menn fara til tunglsins frá Appollo-17 árið 1972. Vonast er til þess að Artemis-3 fari á loft árið 2025 eða 2026.
Gríska gyðjan Artemis er systir guðsins Apollos. Eins og frægt er var það nafn verkefnisins sem sneri að tunglferðunum sem farnar voru á árum áður.