Arnar Þór Viðarsson hefur nú valið þá leikmenn sem eiga að mæta Venesúela í vináttulandsleik 22. september og Albaníu í mögulega afar mikilvægum lokaleik í Þjóðadeildinni fimm dögum síðar.
Aron snýr aftur eftir að hafa ekki verið valinn síðasta árið vegna ásakana um kynferðisbrot en það mál var í sumar fellt niður af héraðssaksóknara.
Alfreð, sem byrjaður er að spila með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, snýr sömuleiðis aftur eftir að hafa ekki spilað með landsliðinu í tæp tvö ár en hann hefur ítrekað glímt við meiðsli.
Guðlaugur Victor Pálsson snýr jafnframt aftur í landsliðið sem og Elías Rafn Ólafsson markvörður sem var meiddur þegar síðustu landsleikir voru spilaðir í júní.
Í hópnum eru hins vegar ekki leikmenn á borð við Albert Guðmundsson og Brynjar Inga Bjarnason.
Arnar sagði á blaðamannafundi í dag að til hefði staðið að Jóhann Berg Guðmundsson og Sverrir Ingi Ingason yrðu einnig í landsliðshópnum en að Jóhann hefði meiðst lítillega í kálfa rétt áður en hópurinn var valinn og Sverrir ekki gefið kost á sér vegna veikinda í fjölskyldunni.
Arnór Ingvi Traustason, sem flutti til Svíþjóðar frá Bandaríkjunum í sumar, gaf ekki heldur kost á sér.
Leikmannahópur Íslands:
Markmenn:
- Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking FK - 1 leikur
- Rúnar Alex Rúnarsson - Alanyaspor - 17 leikir
- Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 4 leikir
Varnarmenn:
- Daníel Leó Grétarsson - Slask Wroclaw - 10 leikir
- Hjörtur Hermannsson - Pisa - 25 leikir, 1 mark
- Hörður Björgvin Magnússon - Panathinaikos - 41 leikur, 2 mörk
- Davíð Kristján Ólafsson - Kalmar FF - 7 leikir
- Guðlaugur Victor Pálsson - D.C. United - 29 leikir, 1 mark
- Alfons Sampsted - Bodo/Glimt - 13 leikir
Miðjumenn:
- Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi - 97 leikir, 2 mörk
- Hákon Arnar Haraldsson - FC Köbenhavn - 3 leikir
- Ísak Bergmann Jóhannesson - FC Köbenhavn - 13 leikir, 1 mark
- Þórir Jóhann Helgason - Lecce - 12 leikir, 2 mörk
- Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 12 leikir, 1 mark
- Birkir Bjarnason - Adana Demirspor - 110 leikir, 15 mörk
- Aron Elís Þrándarson - OB - 14 leikir, 1 mark
- Mikael Neville Anderson - AGF - 14 leikir, 1 mark
- Jón Dagur Þorsteinsson - OH Leuven - 21 leikur, 4 mörk
- Mikael Egill Ellertsson - Spezia Calcio - 6 leikir
- Arnór Sigurðsson - IFK Norrköping - 21 leikur, 2 mörk
Sóknarmenn:
- Alfreð Finnbogason - Lyngby BK - 61 leikur, 15 mörk
- Andri Lucas Guðjohnsen - IFK Norrköping - 9 leikir, 2 mörk
- Sveinn Aron Guðjohnsen - IF Elfsborg - 16 leikir, 1 mark
Í Þjóðadeildinni þarf Ísland að treysta á að Ísrael vinni ekki Albaníu 24. september og þá verður leikur Íslands og Albaníu úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins sem liðin leika í, í B-deild.
Það gæfi íslenska liðinu mikið að vinna riðilinn; öruggt sæti í umspili EM 2024 ef þess þarf, sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar 2024-25, og loks sæti í 2. styrkleikaflokki fyrir dráttinn í undankeppni EM 2024 (10 lið fara í efsta flokk, 10 í 2. flokk og svo framvegis) sem væri svo sannarlega dýrmætt.