„Ég er ekki að skipta mér af því hvað annað fólk segir. Fólk getur auðveldlega búið til sögur um mig þar sem ég er fyrirliði Manchester United, það eru alltaf stórfréttir,“ sagði Maguire í viðtali við talkSPORT eftir leik Englands og Ítalíu. Maguire virðist hafa fulla trú á sjálfum sér.
„Það er ástæðan fyrir því að fjölmiðlar skrifa svo mikið um mig, þau fá smelli og annað eins. Ég spilaði á EM eftir átta vikna meiðsli og komst í lið mótsins,“ bætti Maguire við og segist vel geta spilað þrátt fyrir að vera ekki alveg 100 prósent.
England hefur ekki skorað úr opnum leik í meira en 450 mínútur. Ef vítaspyrnur eru teknar frá er England og San Marínó einu tvö liðin sem ekki hafa skorað mark í Þjóðadeildinni á þessu tímabili.
Aðspurður kveðst Maguire vera í góðu formi en leikmaðurinn hefur ekki verið í liði Manchester United að undanförnu.
„Ég er mjög góður, tilbúinn til að spila. Mér líður vel og í góðu formi,“ sagði Maguire.
Maguire missti byrjunarliðssæti sitt hjá Manchester United eftir 4-0 tapið gegn Brentford þann 13. ágúst en hann hefur aðeins leikið 113 mínútur af þeim 540 sem voru í boði í síðustu sex leikjum félagsins. Af síðustu fimm leikjum sem Maguire hefur ekki byrjað hefur United unnið alla fimm.
„Knattspyrnustjórinn [Erik ten Hag] ákvað að hafa mig ekki með og síðan þá hefur liðið unnið sína leiki. Ég held áfram að vinna hart á æfingasvæðinu og verð tilbúinn þegar tækifærið kemur,“ sagði Harry Maguire, fyrirliði Manchester United.