Elísabet Ólafsdóttir, leikmaður á eldra ári í 5. flokki KR, var með poka í flugstöðinni. Í pokanum var að finna dýrmætan varning. Treyju og keppnisskó Glódísar Perlu Viggósdóttur.
Glódís Perla var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður Íslands í gærkvöldi. Batt saman vörnina og skoraði mark Íslands. Sannkallað fyrirliðamark þótt hún sé reyndar ekki fyrirliði.
Sandra Sigurðardóttir, markvörður Íslands, kom færandi hendi með treyjuna og skóna til Elísabetar sem eðli máls samkvæmt var í skýjunum. Og foreldrarnir, líka.
Elísabet var ekki búin að taka ákvörðun um hvort hún ætlaði að þvo treyjuna. Faðir hennar Ólafur Helgi Þorkelsson gerði henni þó fljótt ljóst að fara þyrfti yfir það allt saman með foreldrunum. Ekki var að sjá annað en að Gunnfríður Björnsdóttir, móðir Elísabetar og eiginkona Ólafs, væri á sama máli.
En ein ung stelpa fór heim með dýrmæta gjöf til Íslands sem mun vafalítið gefa henni byr undir báða vængi á knattspyrnuvellinum enda vandfundin betri fyrirmynd en Glódís Perla.