Hilmar, sem er uppalinn hjá Haukum, fór frá Breiðabliki til Münster í þýsku B-deildinni eftir að hafa átt frábært tímabil í Subway-deildinni síðasta vetur.
„Það gengur bara vel. Það tók smátíma að aðlagast hlutunum úti. Það er meiri strúktúr í körfuboltanum og við erum að gera allt öðruvísi hluti en við gerðum í Breiðabliki í fyrra, en ég er kominn á flott ról og veit mitt hlutverk núna,“ segir Hilmar, ánægður með vistaskiptin til Þýskalands:
„Ég tel að þetta hafi verið mjög gott skref. Ég er líka mjög heppinn með borgina sem ég er í og get ekki beðið um neitt betra. En ég hef þurft að fullorðnast mjög hratt. Áður en ég flutti út vissi ég ekki hvað ég ætti að setja mikið salt í pastavatnið þegar ég væri að elda. En þetta er mjög skemmtilegt og gaman að læra á þetta,“ segir Hilmar og honum hefur einnig gengið vel að aðlagast nýju liði:
„Jú, mjög vel. Liðsfélagarnir tóku manni opnum örmum og hafa hjálpað manni að komast inn í sitt hlutverk. Ég er mjög sáttur.“
Fylgist áfram vel með íslenska körfuboltanum
Hilmar hefur fylgst með góðu gengi sinna gömlu liðsfélaga í Breiðabliki og fleirum úr fjarlægð í vetur:
„Já, og ekki bara Blikum heldur bara íslenskum körfubolta, karla og kvenna. Mér finnst gaman að koma heim eftir æfingar og sjá leiki sem eru í gangi. Ég reyni að horfa á sem mest. Ég segi að þeir [Blikar] séu með betra lið en í fyrra. Það er eins gott að þeir geri eitthvað gott úr þessu,“ segir Hilmar léttur.
Eins og fyrr segir á Ísland möguleika á að komast á HM í fyrsta sinn, jafnvel á næstu sex dögum ef liðinu tekst að vinna Georgíu á föstudagskvöld í Laugardalshöll og svo Úkraínu í Lettlandi á mánudaginn.
„Heppinn að fá að vera með í þessum hópi“
„Þetta er ótrúlegt. Ég vissi ekki að ég myndi verða partur af þessu strax en ég er heppinn að fá að vera með í þessum hópi. Ég er mjög bjartsýnn og held að við eigum góðan séns í þessi tvö lið sem bíða okkar,“ segir Hilmar sem var í íslenska landsliðinu í fyrsta sinn í leikjunum tveimur gegn Spáni og Úkraínu í ágúst.
Hilmar veit vel hve mikilvægur leikurinn við Georgíumenn, sem mættu til Íslands í dag, er enda liðin í harðri baráttu um HM-sæti:
„Ég held að við munum taka þá, ef allt fer vel. Ég veit þó ekki mikið um georgíska liðið en þarna er að minnsta kosti einn fyrrverandi NBA-leikmaður [Tornike Shengelia]. En við hugsum bara um okkur. Spilum góða vörn og góða sókn, og þá held ég að við vinnum.“
Leikur Íslands við Georgíu er í Laugardalshöll á föstudag klukkan 19:30. Miðasala á leikinn er í appinu Stubbur og þegar þetta er skrifað eru örfáir miðar eftir.