Þykir betri en Rihanna
Á listanum má finna marga af frægustu söngvurum sögunnar og Björk skorar hærra en ýmsar kanónur. Má þar til dæmis nefna að Rihanna situr í 68. sæti, Bruce Springsteen í 77. sæti, Janis Joplin í 78. sæti og Bob Marley í 98. sæti.
„Öskrar af ástríðu og innsýn“
Tímaritið Rolling Stone skrifar meðal annars að margir söngvarar hafi reynt að herma eftir einstökum stíl Bjarkar en slíkt sé mjög erfitt að gera. Hún er sögð búa yfir mikilli breidd þar sem hún er meðal annars þekkt fyrir að syngja með miklum hreim í lægri tónunum og búi á sama tíma yfir rödd sem virðist öskra af ástríðu og innsýn.
Þá er henni hrósað fyrir fjölbreytta nálgun á tónlist á síðastliðnum fimm áratugum, sem Rolling Stone segir hafa ýtt undir þróun á hráum og óvenjulegum stíl Bjarkar.

Topp fimm
Söngkonan Aretha Franklin situr efst á lista Rolling Stone en hún hefur með sanni haft gríðarleg áhrif á tónlistarheiminn og í pistlinum er rödd hennar meðal annars líst sem gjöf frá himnum. Fraklin lést árið 2018 og skilur eftir sig ómetanlega menningarlega arfleifð.
Diskódrottningin Whitney Houston fylgir fast á eftir og situr í öðru sæti, Sam Cooke í þriðja sæti, Billie Holiday í því fjórða og Mariah Carey í fimmta sæti. Listann má finna hér.