Hamilton hefur í gegnum tíðina vakið athygli á alls konar óréttlæti ekki síst þegar kemur að kynþáttarfordómum en einnig hefur hann tjáð sig um umhverfismál og mannréttindi.
Í desember breytti formúlan reglugerð sinni þannig að nú þurfa ökumenn að sækja um sérstakt leyfi til að koma með pólítískar, trúarlegar eða persónulegar yfirlýsingar á blaðamannafundum í kringum keppnir.
Margir hafa gagnrýnt þessa nýju reglu, bæði ökumenn sem og mannréttindasamtök.
Hamilton var spurður af því hvort hann væri tilbúinn að brjóta þessa reglu og eiga á hættu á að fá refsingu.
„Þetta kemur mér ekki á óvart en það mun enginn þagga niður í mér um hluti sem ég hef ástríðu fyrir. Þessi íþrótt hefur líka ábyrgðarhlutverk að tala um hluti, vekja athygli á málefnum og benda á mikilvæga hluti ekki síst þegar við erum að ferðast á svo marga staði í heiminum. Það breytist því ekkert hjá mér,“ sagði Lewis Hamilton.
„Það væri samt heimskulegt að halda því fram að ég vilji taka á mig refsisstig fyrir að taka um hluti,“ sagði Hamilton en hélt síðan áfram.
„Ég mun samt halda áfram að segja mína skoðun, við erum enn með þennan vettvang og það er enn fullt af hlutum sem við þurfum að taka á,“ sagði Hamilton.