Unnsteinn Manuel er einn kynna Söngvakeppninnar og náði að fá mynd af sér með aðalfólki kvöldsins. Hann smellti í eina myndasyrpu á Instagram.
Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir sá um að allir væru sætir og fínir í Söngvakeppninni.
Sigga Ózk var ein þeirra sem komst áfram á undankvöldinu og þakkaði fyrir stuðninginn.
Helga Gabríela Sigurðardóttir og Frosti Logason greindu frá því að þau ættu von á lítilli stúlku í sumar.
LXS-skvísurnar eru mættar til Kanaríeyja að sleikja sólina. Sunneva Einarsdóttir og Hildur Sif Hauksdóttir skelltu í myndatöku á bakkanum.
Gummi Kíró kom með góða speki fyrir vikuna.
Embla Wigum fór á tískuvikuna í London ásamt vinkonu sinni.
Þórunn Antonía tók lagið á árshátíð Háskólans í Reykjavík sem fór fram á laugardagskvöld.
Helgi Ómarsson kom móður sinni á óvart á afmælisdaginn hennar.
Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir skelltu sér á skíði fyrir norðan. Síðan að sjálfsögðu var gigg um kvöldið.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fetaði í fótspor formanns Sjálfstæðisflokksins og skreytti köku fyrir barnaafmæli hjá frænda sínum.
Annie Mist Þórisdóttir sýndi frá týpískri æfingu hjá sér.
Auðunn Blöndal fagnaði með viðmælendum og fólkinu á bakvið tjöldin í Tónlistarfólkinu okkar.
Svala rifjaði upp þegar hún keppti í Eurovision í Kænugarði.
Móeiður Lárusdóttir sýndi frá síðustu dögum í sínu lífi.
Knattspyrnumaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson óskaði eiginkonu sinni, Hólmfríði Björnsdóttur, til hamingju með daginn.
Nanna Bryndís sýndi frá tökum á tónlistamyndbandi sínu.