Ísland tapaði með fimm mörkum fyrir Tékkum í kvöld þegar liðin mættust í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Brno. Íslenska liðið lék einn sinn slakasta leik í langan tíma og þjóðin var ómyrk í máli á Twitter eftir leikinn.
Gaupi var ánægður með markvörsluna í fyrri hálfleiknum en ósáttur með margt annað.
Afleitur sóknarleikur í fyrri gegn Tékkum. Illa farið með góð færi. Markvarslan í góðu lagi. Varnarleikurinn ekki eins og best verður á kosið.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) March 8, 2023
Benedikt Grétarsson hafði litlar áhyggjur af gangi mála. Einhverjir vildu fá nýja menn inn.
Hef nákvæmlega engar áhyggjur. Tékkar eru ekki með gott lið. Við klárum þetta í seinni með 4 mörkum
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) March 8, 2023
Andleysi andleysi, inn með Magnus Óla í þennan hóp
— Unnur Sigmars (@USigmars) March 8, 2023
Þegar líða fór á seinni hálfleikin fóru að renna tvær grímur á stuðningsmenn Íslands.
Maður er að verða vitni að sögulegum atburði í beinni útsendingu. Sögulegu afhroði #handbolti #handkastid
— Einar H. Sigurdsson (@einsihlo) March 8, 2023
Orðlaus
— Gaui Árna (@gauiarna) March 8, 2023
Hvaða rugl er maður að horfa á á RUV????
— Eyfikr (@eyfikr) March 8, 2023
Gummi Gumm nákvæmlega núna pic.twitter.com/f89o1p2BHI
— Rikki G (@RikkiGje) March 8, 2023
Eru menn algjörlega geldir í því að detta í hug að breyta einhverju sóknarleiknum þegar það gengur ekkert t.d prufa 7vs6 @logigeirsson @handkastid @ruvithrottir
— benony fridriksson (@benonyf) March 8, 2023
Eftir leik voru margir sem vildu tjá sig.
Þetta er á pari við tap fótboltalandsliðsins gegn Liechtenstein á sínum tíma. Ævintýralegt gjaldþrot. #handglíman
— Henry Birgir (@henrybirgir) March 8, 2023
ÍSL TÉK
— Arnar Daði (@arnardadi) March 8, 2023
- Andlaust
- Skammarleg frammistaða
- Leiðtogalaus her
- Dauðafæri í fyrri hálfleik
- Engin dauðafæri í seinni
- Kraftlaust sóknarlega
- Vörnin töluvert þéttari en áður
- Seinni bylgjan ekki til
- Bjöggi og Viggó þurfa ekki að skammast sín fyrir sína frammistöðu
Þetta er svo lélegt að dómararnir þurfa bara rétt svo að færa línuna Tékkum í hag. Ekki eins áberandi slakir og annars þyrfti. #handbolti
— Þorkell Magnússon (@thorkellmag) March 8, 2023
Einn slakasti landsleikur síðari ára. Andleysið algjört. Björgvin Páll frábær og Ýmir var ekki slæmur. Sóknarlega hægt og fyrirséð. Viggó sá eini sem var á lífi.Næsta mál.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) March 8, 2023
Vissulega að spila á útivelli við mjög fínt lið og án Ómars. En kræst. Þvílíka þrotið þessi sókn. Auglýsi eftir sjálfstrausti og karakter fyrir heimaleikinn á sunnudag.
— Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (@thorkellg) March 8, 2023
Valur hefði unnið þetta Tékkneska lið. Eina #handkastið
— Styrmir Sigurðsson (@StySig) March 8, 2023
Hvenær átti Aron síðast mjög góðan leik fyrir íslenska landsliðið?
— Tommi Tanölg (@TomasJohannss) March 8, 2023
Það var jafn skemmtilegt og spennandi að fylgjast með Halla og Elon hér á Twitter í gær og það var leiðinlegt að horfa á íslenska landsliðið í handbolta keppa við Tékka.
— Golli - Kjartan Þorbjörnsson (@gollmundur) March 8, 2023
Úff, þetta var einhver slakasti landsleikur sem ég man eftir. Tékkar eru miðlungslið en okkar menn mættu til leiks eins og þetta myndi gerast af sjálfu sér. 12. sætið á HM virðist hafa verið akkúrat staðurinn sem þetta lið á að vera á.
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) March 8, 2023
Sumir vildu sjá liðið taka eitt gott skrall til að hrista hópinn saman.
Ég held að þessi hópur þurfi að fara saman á fyllerí, trúnó, viðra skoðanir, rífast hvorn við annan, hugsanlega slást og svo leysa öll mál og árekstra. Það er eins og þeir hafi aldrei hitt hvorn annan í þessum leik #handbolti
— Georg (@imedferd) March 8, 2023
Gott viðtal hjá Aroni. Það lang besta hjá honum í dag.
— Guðmundur Marinó (@GummiMarino) March 8, 2023
Czech Republic 22-17 Iceland (12-10)
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) March 8, 2023
Shocking match by Iceland! 7(!) goals in 2nd half and 17 in total!
Fewest goals by Iceland in a single half since the 2nd half at the Euros 2020 vs Hungary (6 goals).
Fewest goals in total by Iceland since the WC 2015 vs Sweden (24-16).
Tékkar voru ekkert spes í þessum leik, við vorum bara ömurlegir. Vel hægt að vinna upp muninn ef við spilum vel. Þurfum við annan þjálfara fyrir sunnudaginn til að kveikja í þeim? Hvern þá?
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) March 8, 2023
Maður hef séð margt í íþróttum en þetta toppar nánast þvæluna á Anfield á sunnudag. Almáttugur.
— Rikki G (@RikkiGje) March 8, 2023
Tökum þessi úrslit, kuðlum þau saman og hendum í ruslið. Nú þurfum við að styðja strákana okkar. Þeir eru í smá lægð núna en þeir munu koma til baka. Áfram Ísland. #handbolti #landsliðið
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) March 8, 2023
Fyrir þau sem eru að velta fyrir sér hvað þessi úrslit þýða. Tvö lið beint áfram á EM 24. pic.twitter.com/soJKrVrqtN
— Arnar Daði (@arnardadi) March 8, 2023