Þetta herma heimildarmenn Financial Times. Þeir segja einnig að áform séu uppi um að breyta hlutafélagalöggjöf Sviss til þess að koma í veg fyrir að hluthafar bankans fái að greiða atkvæði um söluna.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um neyðarfund ríkisstjórnar Sviss vegna hugsanlegrar yfirtöku UBS á Credit Suisse.
Í frétt Financial Times segir að forsvarsmenn UBS hafi tjáð forsvarsmönnum Credit Suisse í morgun að þeir væru tilbúnir til þess að greiða 0,25 svissneska Franka fyrir hvern hlut í bankanum. Lokaverð hlutabréfa í bankanum var 1,86 Frankar á föstudag.
Þá segir að óvíst sé að verði af yfirtökunni og að skilmálar hennar haldist þeir sömu. Til að mynda er ákvæði sagt vera í samningsdrögum um að ekkert verði af yfirtökunni ef skuldatryggingarálag Credit Suisse eykst um hundrað punkta eða meira.