Landsbankinn sá sig knúinn til að vekja athygli á því á vefsíðu sinni í gær að myndskeið og myndir úr hraðbanka Landsbankans væru fölsuð. Bankinn hefði ekki breytt viðmóti sínu í hraðbönkum til að taka fram að Edda Falak, blaðamaður hjá Heimildinni, ynni ekki í bankanum.
Edda gekkst við því fyrir helgi að hafa ekki lýst stöðu sinni hjá fjármálafyrirtækjum í Danmörku rétt. Baðst hún velvirðingar á því í yfirlýsingu ásamt stjórnendum Heimildarinnar. Kom yfirlýsingin í kjölfar opins bréfs Frosta Logasonar sem hann birti á Vísi þar sem hann kvaðst hafa sannanir fyrir því að Edda hafi logið til um starfsferil sinn í fjölmiðlum.
Yfirlýsing Eddu Falak og ritstjóra Heimildarinnar hefur kallað fram æði misjöfn viðbrögð landsmanna á samfélagsmiðlum. Fjöldi fólks styður Eddu með þátttöku í #afsakið-herferð á meðan aðrir setja spurningamerki við trúverðugleika hennar. Svo eru þeir, eins og Ólafur, sem slá málinu upp í grín.
Fréttin vísaði til glöggs netverja
Fréttin.is sem Margrét Friðriksdóttir heldur úti sagði frá því í gær að Landsbankinn hefði sett fyrrnefnd skilaboð í hraðbanka sína. Vísaði vefsíðan til þess að glöggur netverji hefði undrast þegar skilaboðin blöstu við.
„Mögulega er bankinn að leggja áherslu á að einungis heiðarlegt fólk vinni í bankanum og þar sé ekkert kynbundið ofbeldi stundað,“ sagði á vef Fréttarinnar.
Nú liggur fyrir að hinn „glöggi netverji“ er Ólafur Kristjánsson sem mætti í Bítið í morgun og ræddi málið.
„Þetta var bara sunnudagsgrín hjá mér. Ég var að fara í hraðbankann uppi í Grafarholti. Ég gleymdi kortinu og var pínu pirraður. Það er búið að vera frost í níu mánuði og maður sér ekki fram á að hlýni fyrr en um miðjan júlí. Ég var pínu neikvæður,“ segir Ólafur.
Bjó til lítið grín
Hann hafi ákveðið að sprella svolítið með eitt af fréttamálum líðandi stundar.
„Edda Falak hefur verið mikið í fréttum að undanförnu. Svo ég bjó til lítið grín. Ég setti skilaboð að Edda Falak hefði aldrei unnið í banka, inn á skjáinn hjá Landsbankanum.“
Skilaboðin vöktu töluverða athygli þótt telja megi líklegt að flestir landsmenn hafi áttað sig á því að um einhvers konar grín væri að ræða. Ólafur upplýsir að hann hafi nýtt tölvukunnáttu sína til að setja skilaboðin inn á myndband sem hann tók í hraðbankanum.
Hann segist í raun hafa misst sig í að gera grínið illa svo það hafi á endanum orðið ansi raunverulegt. Glöggir aðilar hafi þó bent honum á að hann væri ekki að nota sama letur og væri í hraðbankanum hjá Landsbankanum.
Falsfrétt af bestu gerð
„Ég var ekkert að eyða of miklum tíma í þetta,“ segir Ólafur. Grínið hafi verið sett fram á hans persónulegu Facebook-síðu og svo hafi Fréttin.is fallið í gildruna, svo að segja.
„Það hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að hafa samband við mig og spyrja hvort þetta væri grín eða ekki,“ segir Ólafur og vísar til þess að Fréttin hafi slegið gríninu upp sem frétt án þess að kynna sér málið.
„Þetta var falsfrétt af bestu gerð. Mikið grín og það var mikið hlegið. En svo er alltaf, eins og í öllu góðu gríni, einhver hópur sem finnst það ekki fyndið. Fyrir mér er það líka grín.“
Ólafur segir Landsbankann hafa brugðist rosalega vel við stöðunni með tilkynningu á vef bankans til að taka af vafa um að myndböndin og myndin væru fölsuð.