Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Við kíkjum líka út í heim en til átaka kom milli Ísraela og uppreisnarmanna frá Palestínu í dag þegar þeir skipust á að skjóta eldflaugum á yfirráðasvæði hinna. Mikil spenna er á svæðinu, ekki síst vegna þess að þrír stærstu trúarhópar landsins halda allir upp á stórar trúarhátíðir þessa dagana.
Þá kíkjum við á kýrnar á Suðurlandi, sem njóta góðs af nýjum klaufsnyrtibás. Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á Stöð 2 og Bylgjunni klukkan 18:30.