Samningur Lionel Messi hjá franska liðinu PSG rennur út eftir þetta tímabil og síðustu vikur hafa þær sögusagnir orðið æ háværari að Messi ætli sér að ganga til liðs við Barcelona á nýjan leik.
Nú hefur spænski íþróttablaðamaðurinn Gerard Romero sagt að hæstráðendur spænsku deildarinnar La Liga telji að Barcelona sé nú þegar búið að semja við Messi og markaðsdeild félagsins byrjuð að undirbúa kynninguna þegar hann verður kynntur sem leikmaður liðsins.
OJOOO!! Novedades caso LEO MESSI https://t.co/ZfcKzZmFXi
— Gerard Romero (@gerardromero) April 14, 2023
Í máli Romero kemur fram að Barcelona hafi í lok mars lagt fram tillögu til forráðamanna La Liga hvað varðar fjárhagslegu hlið félagaskiptanna en spænski risaklúbburinn hefur verið í fjárhagsvandræðum síðustu misserin.
Romero segir að La Liga hafi hafnað hluta tillögu Barcelona en segir jafnframt að félagið sé að vinna að nýrri og endurbættri tillögu. Þegar Messi yfirgaf Barcelona í ágúst 2021 kenndi félagið forráðamönnum La Liga um og bar fyrir sig fjárhags- og skipulagslegum hindrunum deildarinnar.
Miðilinn The Athletic skrifaði fyrr í vikunni að það sé mjög raunhæfur möguleiki að Messi gangi til liðs við Barcelona á ný og segir að liðið undirbúi tilboð en að fjárhagsstaða félagsins geri verkefnið mjög krefjandi. Þá kemur einnig fram að knattspyrnustjórinn Xavi sé með það á hreinu nú þegar hvernig Messi muni bæta lið Barcelona sem stefnir hraðbyri að spænska meistaratitlinum þetta tímabilið.
Fabrizio Romano : PSG s proposal is still there, but it isn t a priority for Messi at the moment. The month of May will be crucial to see how Barça will proceed with Financial Fair Play. Xavi is regularly calling Messi and he has no intention to stop. pic.twitter.com/UskB6PZMKV
— FCB Albiceleste (@FCBAlbiceleste) April 14, 2023
The Athletic skrifar einnig að Barcelona þurfi að minnka launakostnaðinn um 200-250 milljónir evra á ársgrundvelli sem eru rúmlega 40 milljarðar íslenskra króna.
Ýmsir fjölmiðar greindu frá því á dögunum að Messi væri með risatilboð frá Sádi Arabíska félaginu Al-Hilal og taki hann því mun hann spila í sömu deild og Cristiano Ronaldo leikmaður Al-Nassr.