Kristín Jónsdóttir, fagstjóri náttúruvár, segir í samtali við fréttastofu að virknin nú hafi verið þannig að skjálftarnir hafi verið grunnir.
„Þegar um er að ræða kvikuhreyfingar þá er virknin allt önnur og fleiri minni skjálftar. Þetta datt eiginlega alveg niður um klukkan ellefu sem bendir þá til að þetta tengist frekar vatni og jarðhita,“ segir Kristín.

Kröftug jarðskjálftahrina hófst í norðausturhluta öskjunnar í Kötlu klukkan 9:41 í morgun. Þrír skjálftar yfir fjórum að stærð hafa mælst í dag, sá stærsti 4,5 klukkan 9:52. Ekki hefur þó mikið gerst eftir klukkan 11.
Ragnar Axelsson, ljósmyndari fréttastofu, flaug yfir Mýrdalsjökul á góðviðrisdegi fyrir tveimur vikum og á myndunum að neðan má sjá sigdæld í jöklinum.
Langlíklegast að þetta sé búið
Kristín segir langlíklegast að það muni ekkert meira gerast.
„Það var þannig árið 2016 þegar síðast voru skjálftar af þessari stærðargráðu á þessu svæði. Það er enginn sérstakur gosórói núna eða eitthvað sem bendi til að það sé vatn á leiðinni. Það má vera að þessi hrina núna sé til marks um breyttar aðstæður hvað varðar aðgengi að vatni og þrýstingi í jarðskorpunni. Við þurfum bara að halda áfram að fylgjast vel með. Stundum koma hlaup úr þessum kötlum, en það lekur líka úr þeim jafnt og þétt. En það er ákveðin óvissa núna.“

Fylgjast áfram vel með
Kristín segir að alltaf þegar verða skjálftar sem þessir þá er nauðsynlegt að fylgjast vel með.
„Þetta er þokkalegur hristingur, sá mesti frá árinu 2016. Þessir skjálftar fundust vel víða. Þegar er svona óróleikatímabil þá þarf að vera á tánum og fylgjast vel með. En það er ekkert núna sem bendir til að það sé eitthvað fleira að fara að gerast.“