Eldsteikt folald með krömdum sveita-jarðeplum og gráðostasósu
Uppskrift fyrir 4-6 manns
Marinering fyrir kjöt:
- 150 ml olía
- 1 heill rauður chili
- 1 safi lime
- 1 þumall engifer
- ½ búnt steinselja
- 2 msk dijon
- 5 hvítlauksrif
- 2 msk hunang
- ½ búnt graslaukur
- 1 shallot laukur
- 2 msk sesamfræ
Til steikingar:
- 2 heilar folaldalundir
- 2 msk olía
- 1 msk smjör
- Salt
- Pipar
Kramdar sveitakartöflur:
- 600 gr soðnar kartöflur kramdar
- 2 hvítlauksrif
- 1 shallot laukur saxaður
- 6 sneiðar saxað beikon
- Svartur pipar
- 2 msk smjör
Gráðostasósa:
- 750 ml nautasoð
- 250 ml rjómi
- ⅔ af heilum gráðosti
- 1 laukur
- 100 gr rjómaostur
- Svartur pipar
- 1 msk smjör
- 2 -3 msk hveiti
Aðferð:
- Setjið hráefni fyrir marineringu í skál og blandið vel með töfrasprota. Skerið kjötið í steikur og hellið marineringu yfir og hvílið við stofuhita í 1 klukkustund.
- Sjóðið kartöflur í saltvatni í 10 mínútur, hellið vatninu af og látið kartöflurnar standa í pottinum á meðan þú lagar sósuna. Skerið niður beikon og steikið í potti ásamt olíu, lauk og hvítlauk. Setjið kartöflurnar út í og steikið saman í um 10 mínútur.
- Skerið niður lauk og setjið í pott ásamt olíu og hitið í 3-4 mínútur. Blandið saman við hveitið og hellið síðan kjötsoði út í pott. Sjóðið í 5 mínútur. Bætið út í gráðosti, rjóma, rjómaosti og svörtum pipar og sjóðið í 10-15 mínútur.
- Grillið kjöt á pönnu í um 7-8 mínútur á hvorri hlið og munið að nota salt og pipar. Hvílið kjöt í allavega 10 mínútur áður en borðað er.

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem kennir ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og koma þeir inn vikulega.
Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.