Skoðun

Langþráðri niðurstöðu náð

Stefán Vagn Stefánsson skrifar

Þau ánægjulegu tíðindi bárust seinni partinn í gær að sættir hafi náðst vegna fyrirhugaðrar löggjafar ESB um losunarheimildir á flugferðir. Á blaðamannafundi sem Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins, og Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra héldu í forsetabústaðnum kom fram að tekið verði tillit til séríslenskra aðstæðna og að Ísland muni hljóta undanþágur sem gildir til tveggja ára og hægt verði að deila á milli flugfélaga.

Hér er um að ræða eitt stærsta hagsmunamál Íslands frá því EES- samningurinn var tekin upp og íslensk stjórnvöld hafa verið vakin og sofin yfir því að tryggja að Ísland þurfi ekki að undirgangast íþyngjandi losunarskatt sem fyrirhugað var að leggja á flugleggi til og frá landinu. Ef þessum mikilvæga áfanga hefði ekki verið náð hefði verið fyrirséð að kostnaður vegna ferðalaga til og frá landinu hefði hækka umtalsvert, en við sem eyþjóð erum í ólíkri stöðu en flest önnur lönd í Evrópu.

Við þurfum þó að draga úr olíunotkun

Þrátt fyrir að þessu mikilvæga hagsmunamáli hafi verið náð höfum við en verk að vinna. Ísland hefur sett sér metnaðarfull markmið í loftlagsmálum og þar er flugið ekki undanskilið. Stefnt er að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Notkun olíu er helsti losunvaldurinn og fer 52% af allir olíunotkun Íslendinga í flug. Íslensk stjórnvöld hafa sett sér markmið um að hætta alfarið að nota olíu og unnið er allra leiða til þess. Eigi orkuskiptin að ganga upp er fyrirséð að finna þurfi aðra nýja græna endurnýjanlega orkugjafa í stað olíunnar.

Rafeldsneytisframleiðsla

Sá sem hér skrifar lagði í vetur fram þingsályktunartillögu um stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi en framleiðsla rafeldsneytis sem vetnis eða annars rafeldsneytis í formi ammóníaks, metanóls eða metans, eru græn tækifæri sem bíða þess að vera nýtt. Rafeldsneyti má nýta í þyngri farartæki líkt og flugvélar og skip. Auk þess að framleiða endurnýjanlega orkugjafa til að fullnægja þörfum innan lands liggja einnig gríðarleg tækifæri í að hefja útflutning á rafeldsneyti. Framleiðsla á rafeldsneyti er kostnaðarsöm aðgerð en þótt framleiðsla á rafeldsneyti og sala sé í dag hlutfallslega lítil þá er áhugi fjárfesta mikill og það felast ákveðin tækifæri í því að fjármagna framleiðsluna þegar markaðir eru orðnir tryggir.

Mikilvægi þess að Ísland geti orðið sjálfbært er kemur að öflun á rafeldsneyti er ótvírætt eins og núverandi ástand heimsmála sýnir svo rækilega. Sjálfbærni í orkuöflun er þjóðaröryggismál fyrir utan þá þjóðhagslegu hagsmuni sem af því hljótast að framleiða innlenda orkugjafa til notkunar í orkuskiptum Íslendinga. Framtíðartækifærin eru því mikil þegar kemur að framleiðslu á rafeldsneyti og þetta styður við markmið okkar um orkusjálfstæði Íslands og öruggar samgöngur til og frá landi.

Höfundur er þingmaður Framsóknar. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×