Skoðun

Náttúra, söfn og sjálf­bærni

Helga Aradóttir skrifar

Í dag, 18. maí er Alþjóðlegur dagur safna. Dagurinn er haldinn hátíðlegur ár hvert og leitast er við að tengja starf safna við valin heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hverju sinni. Þema dagsins þetta árið er „Söfn, sjálfbærni og vellíðan“ og tengt er við eftirfarandi heimsmarkmið: Heilsu og vellíðan, Aðgerðir í loftslagsmálum og Líf á landi. Á þessum degi bjóða mörg söfn ókeypis aðgang að sínum sýningum auk þess að standa fyrir fjölbreyttum viðburðum.

Söfn og sjálfbærni

Sjálfbærni er einfalt hugtak en veigamikið og snýst um að við skilum jörðinni til komandi kynslóða í góðu ástandi. Sjálfbærni snýst um samspil og jafnvægi samfélags, náttúru og efnahags og mikilvægt er að huga að aðgerðum gegn loftslagsbreytingum í samvinnu við verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Sjálfbærni fléttast inn í starf þeirra margvíslegu safna sem við erum svo lánsöm að hafa aðgang að á Íslandi. Á söfnum er gögnum og munum safnað, stundaðar rannsóknir, safnkostur varðveittur og upplýsingum og fróðleik miðlað með sýningum og öðrum hætti. Söfn bjóða upp á opið samtal um náttúru- og menningararfinn og eru mikilvægur félagslegur vettvangur þar sem fjölbreyttir hópar koma saman. Þau eru því frábær vettvangur til þess að koma jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum til leiðar til samfélagsins.

Náttúruminjasafnið og líffræðileg fjölbreytni

Náttúruminjasafn Íslands vinnur með náttúruna í öllu sínu veldi og viðfangsefnin eru fjölbreytt eftir því. Við leiðum hugann að stöðu mannfólksins í náttúrunni, stækkum upp það sem okkur er hulið sjónum, köfum ofan í vistkerfi og fylgjumst með ferlum og samspili ólíkra lífvera og lífvana þátta auk þess að hvetja til eflingar tengsla við náttúruna. Það má því með sanni segja að þemað ,,Söfn, sjálfbærni og vellíðan‘‘ eigi vel við kjarnastarfsemi Náttúruminjasafnsins.

Líffræðileg fjölbreytni hefur verið í brennidepli í miðlun Náttúruminjasafnsins í vetur og fléttast inn í fjölbreytt og þverfagleg verkefni safnsins enda er hún grundvallarundirstaða fyrir tilveru mannkyns og allra annarra lífvera. Þar ber hæst að nefna samstarfsvettvanginn BIODICE (biodice.is) – samtök um eflingu vitundar um líffræðilega fjölbreytni á Íslandi m.a. með verkefnunum Hátíð líffræðilegrar fjölbreytni sem stendur út árið 2023 og verkefnið List og lífbreytileiki sem unnið var með breiðum hópi listafólks og skólum víðs vegar um landið með styrk frá Barnamenningarsjóði Íslands.

Menningin byggir á náttúrunni

Lega Íslands sem úthafseyja lengst norður í höfum og sá stutti tími sem liðinn er frá síðasta jökulskeiði þegar landið var hulið jöklum skýrir sérstöðu náttúru Íslands að miklu leyti. Hér eru fáar tegundir á alþjóðakvarða, en mikill fjölbreytileiki í vistkerfum og innan tegunda sem okkur ber að vernda. Menningararfurinn byggir að miklu leiti á náttúrunni og því er sérstaða náttúru Íslands mikilvæg til að skilja fortíðina og stefna að sjálfbærari framtíð. Í gegnum tíðina hefur náttúran verið einn helsti innblástur mannsins, hvort sem er í myndlist, handverki, hönnun, ritlist, kvikmyndum eða tónlist sem endurspeglast í sýningum og safnkosti safnanna.

Söfn eru frábær vettvangur fyrir þekkingarsköpun, rökræður, stefnumót, innblástur, nýsköpun og þátttöku í samfélaginu. Við finnum ekki lausnirnar við flóknum verkefnum nema með öflugum rannsóknum á náttúrunni, miðlun og samvinnu. Við þurfum vettvang til að rannsaka fortíðina, í jarð- og mannsögulegu samhengi. Þar gegna söfnin lykilhlutverki.

Heimsækjum söfnin og njótum þeirra í dag sem og aðra daga!

Höfundur er safnkennari hjá Náttúruminjasafni Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×