Rétt rúm klukkustund er í að flautað verði til leiks í oddaleik ÍBV og Hauka í Olís-deild karla í handknattleik. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en upphitun hefst núna klukkan 18:00.
Einar Kárason blaðamaður Vísis í Vestmannaeyjum hitti Kára Kristján Kristjánsson línumann ÍBV að máli á bryggjunni við Vestmannaeyjahöfn í dag. Kári segir eftirvæntingu ríkja á Heimaey.
„Ég verð að viðurkenna að ég er drulluspenntur. Það er geggjað veður og fólkið klárt. Það er eftirvænting, ég segi ekki annað.“
Kári á von á hasar í leiknum í kvöld.
„2-2 í einvíginu. við tökum fyrstu tvo leikina, flott hjá okkur. Þriðji leikurinn er vesen og í fjórða leiknum eru þeir bara miklu betri. Svo er fimmti leikurinn í kvöld og ég held að hann verði pínu sérstakur. Hár púls, allar klisjurnar í bókinni og ÍBV verður Íslandsmeistari,“ sagði Kári kokhraustur að vanda.
Eyjamenn komust í 2-0 í einvíginu og þeir voru ekki margir sem bjuggust við þessari endurkomu Hauka sem unnu leik fjögur sannfærandi að Ásvöllum á mánudaginn. Kári er þó ekki á því að pressan sé á ÍBV.
„Ég myndi nú eiginlega bara frekar spegla það. Vindurinn er svolítið í bakið á þeim með tvo í röð. Mér finnst við vera meira afslappaðri. Við vorum frekar trekktir í leiknum í fyrradag en ég held að lykillinn sé að finna gott spennustig.“
Hann segir ekkert óeðlilegt að fólk setji pressu á lið Eyjamanna.
„Auðvitað finnur maður kitl í maganum, við vitum að þetta er leikur fimm og það verða allir að horfa. Bærinn er allur á bakvið okkur, húsið verður fullt og það er önnur helgi framundan þar sem við ætlum að skapa svolítið góða stemmningu. Sjómannadagurinn um helgina og við ætlum að taka það á lofti.“
Allt viðtalið við Kára má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Leikur ÍBV og Hauka hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar fyrir leikinn hefst klukkan 18:00.