Skoðun

„Það sem höfðingjarnir hafast að - hinir ætla að þeim leyfist það“

Bergljót Davíðsdóttir skrifar

„Það sem höfðingjarnir hafast að - hinir ætla að þeim leyfist það,“ kvað Hallgrímur Pétursson fyrir tveimur öldum.

Það á jafn vel við nú að hugsa til orðtaks sálmaskáldsins, rétt eins og þá. Íslendingar virðast endalaust láta þá sem völdin hafa komast upp með að brjóta lög án þess að höfðingjarnir gjaldi fyrir það.

Birna Einarsdóttir sér ekkert athugavert við að semja um sekt yfir rúman milljarð, sem hún greiðir ekki úr eigin vasa heldur tekur úr sjóðum bankans sem henni er treyst til að stjórna og fær himinhá laun fyrir þá ábyrgð sem hún ekki axlar. Hvað er það annað en þjófnaður? Hvar eru mörkin? Að ganga í sjóði sem mönnum er treyst fyrir og nota til að greiða fyrir eigin mistök getur ekki verið löglegt.

Ég yrði dregin fyrir dóm ef ég snerti fé sem ég ekki á og notaði í eigin þágu og fengi dóm sem ég yrði að hlýta og ætti mér ekki viðreisnar von. Og mannorð mitt lagt í rúst!

Siðblindan er orðin allgjör meðal valdhafa, sem síðan smitar okkur öll. Birna er ekki eini siðblindinginn, en hroki hennar er algjör. Hún veit af reynslu að hún kemst upp með þetta; nema við komum í veg fyrir það því ráðamenn munu ekkert gera.

Hvað er að okkur? Ætlum við að láta þetta viðgangast? Þjóðin á í bankanum og ætlar stjórn bankans ekkert að gera Hvað finnst þeim sem eiga hlutabréf í bankanum um að eign þeirra rýrni vegna þessa, en hlutabréf í bankanum lækkuðu umtalsvert?

Nei almenningur er orðin svo dofinn að enginn kraftur er í mönnum að rísa upp og mótmæla nema hér á síðum. Síðan lognast umræðan út af og nýtt hneykslismál fær athyglina.

Ætlum við ekki að hrista af okkur meðvitundarleysið og dofann, sem stjórnvöld með taktvissri vitund hefur smátt og mátt valdið til að draga úr okkur kraft og þor?

Ef einhver döngun væri í okkur, einhver réttlætiskennd funaði upp innra, samstaða og frumkvæði væri fyrir hendi myndum við safnast saman og berja bumbur eins lengi og þyrfti til að þeir sem skaða okkur fjárhagslega axli sína ábyrgð.

Er ekki tími til kominn að við sem nýtum það eina vald sem við höfum með samstöðu, snúa bökum saman og krefjast réttlætis?

Hver ætlar að taka af skarið og stíga fram? Ég er með, en þið sem yngri eruð og hafið kraftinn og þau áhrif sem nafn ykkar gefur, standið nú upp!

Höfundur er blaðamaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×