Mótið hófst á miðvikudaginn og því líkur síðdegis á morgun. Allar aðstæður á svæðinu eru til mikillar fyrirmyndar.
„Mótið er mjög sterkt og það ræðast bara á morgun hjá okkur hvernig þetta fer allt saman, það er allt opið og ofboðsleg gæði hérna. Á morgun eru sem sagt A – úrslit í öllum greinum, sem sagt hringvallargreinum,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri mótsins.

Íslandsmeistarar í kappreiðaskeiði og gæðingaskeiði voru verðlaunaðir í dag þar sem Konráð Valur Sveinsson sópaði til sín verðlaunum á Kastor og Tangó.
„Já, ég er búin að vera Íslandsmeistari í 250 metra skeiði 2018, 2019, 2020, 2021 og núna 2023. Þetta eru bara náttúrulega algjörir gæðingar, sem ég er með, hátt dæmdir fyrstu verðlauna graðhestar báðir með 10 fyrir skeið,“ segir Konráð Valur.

Og Elvar Þormarsson varð Íslandsmeistari í gæðingaskeiði þriðja árið í röð á hryssunni Fjalla Dís 9. vetra, sem er búið að selja til Danmerkur.
„Þetta er frábært, algjörlega frábært. Þessi hryssa er algjörlega einstök enda hugsa ég að margir væru búnir að ná þessu ef þeir hefðu verið með hana. Þetta er allt henni að þakka, það er nú bara þannig,“ segir Elvar.

Og Sigrún Högna Tómasdóttir gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í 150 metra á skeiði á 21 vetra hesti, Funa frá Hofi
„Þessi hestur er alveg einstakur, þetta er algjör meistari, maður getur ekki fundið betri hest, það sést alveg á honum hvað hann er einstakur,“ segir Sigrún.

Sigurbjörn Bárðarson, landsliðsþjálfari fær það erfiða hlutverk að velja knapa eftir Íslandsmótið í íslenska landsliðið í hestaíþróttum, sem munu keppa á heimsleikum íslenska hestsins í Hollandi í ágúst.
„Maður er þungt hugsi og liggur lon og don undir felldi en þetta er erfitt, það eru svo margir góðir,“ segir Sigurbjörn.
